** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 5. og efstu hæð í lyftuhúsi ásamt bílskúr og tveimur bílastæðum í lokaðri bílageymslu við Efstaleiti 11 í Reykjavík. Eignin er samtals skráð 135,3 m2, þar af íbúð 94,4 m2, geymsla 11,2 m2 og bílskúr 29,7 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla er í sameign í kjallara. Bílskúr er í bílakjallara og tvö bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Mjög vönduð eign með fallegum innréttingum, steinn á borðum, fiskibeinaparket á gólfum, gólfsíðir gluggar og svalir til suðurs með glæsilegu útsýni. Frábær staðsetning, miðsvæðis í Reykjavík, skammt frá allri helstu þjónustu.
**Bílskúr og tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni**Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með fiskibeinaparketi á gólfi og fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa er opin inn í eldhús, fiskibeinaparket á gólfi, stórir gólfsíðir gluggar á tvo vegu og útgengt á rúmgóðar suður
svalir með gler handriði og glæsilegu útsýni.
Eldhús er með fiskibeinaparketi á gólfi og vandaðri innréttingu. Stór eyja, steinn á borðum og stækkað spanhelluborð með innfelldum gufugleypi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fiskibeinaparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Svefnherbergi 2 er með fiskibeinaparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Vönduð innrétting með stein á borði, "walk-in" sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi og innréttingu með vaski. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Bílskúr er innan bílakjallara, skráður 29,7 m2. Innangengt í sameign, góð innrétting með vask, flísar á gólfi, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð á sér mæli fyrir framan bílskúr og internet tenging.
Bílastæði í bílakjallara eru tvö, sérmerkt eigninni, annað fyrir framan bílskúr og hitt við innganginn inn í bílakjallarann.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 11,2fm.
Hjóla og vagnageymslur eru í sameign.
Sameiginlegur garður með leiktækjum.
Verð kr. 132.900.000,-