Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Hvassaleiti 26, fallega, bjarta og vel skipulagða fimm til sex herbergja hæð á annarri hæð í fjögurra hæða húsi, ásamt bílskúr. Húsið er nýlega steinað að utan og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Búið er að skipta um glugga á austurhlið hússins. Íbúðin er í göngufæri frá Kringlunni og stutt er í skóla, leikskóla og út á stofnbrautir.
Íbúðin sjálf er skráð 158 fm hjá HMS og bílskúrinn 21,6 fm, eða samtals 179,6 fm.
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn á parketlagða forstofu og hol með góðum fataskáp. Í holi er gestasnyrting sem er flísalögð í hólf og gólf. Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi og útgengt er frá stofu út á rúmgóðar og nýuppgerðar svalir. Eldhúsið er stórt og rúmgott með eldri viðarinnréttingu, korkur á gólfi. Baðherbergi er nýlega endurgert með upphengdu salerni og fallegu baðkari á fótum með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf. Hjónaherbergið er rúmgott og bjart, með dúk á gólfi og góðu skápaplássi. Herbergi I er rúmgott og parket á gólfi. Mögulegt er að breyta herberginu aftur í hluta af stofunni með því að taka niður millivegg. Herbergi II er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skáp. Herbergi III er rúmgott með dúk á gólfi. Herbergi IV er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skáp. Í kjallara er sérþvottahús fyrir íbúðina ásamt sér geymslu, hjóla- og vagnageymslu. Bílskúrinn er með sjálfvirkri hurðaopnun og er bílastæði fyrir framan hann. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum. Skipt hefur verið um allt gler í gluggum íbúðarinnar. Nú er yfirstandandi vinna við skipti á gluggum á austurhlið hússins, nýir dyrasímar verða settir upp og rætt hefur verið um að skipta um teppi á stigagangi.
Þessi íbúð hefur allt sem þarf fyrir stóra fjölskyldu og Hvassaleitið er með eftirsóttari staðsetningum á höfuðborgarsvæðinu. Kringlan er í göngufæri og stutt er í Laugardalinn og miðbæinn. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni löggiltum fasteignasala í síma 8966020 eða í tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
14/01/2019
60.000.000 kr.
55.300.000 kr.
179.6 m2
307.906 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.