Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Grensásvegur 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
76.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
1.018.301 kr./m2
Brunabótamat
53.250.000 kr.
Byggt 2025
4. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25221841
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Valhöll fasteignasala og Þóra Birgisdóttir kynna einstaklega fallega útsýnisíbúð við Grensásveg 1F, íbúð 404, 108 Reykjavík:
Um er að ræða nánast nýja, 2ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í vönduðu 7 hæða fjölbýlishúsi með gólfsíðum gluggum og frábæru útsýni til austurs. Eignin er skráð 76,5 fm, skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúð 71,2 fm og sérgeymsla 5,3 fm. inndregnar og skjólsælar svalir eru 6,3 fm. Bílakjallari undir húsinu er aðgengilegur með Parka appinu.

Íbúðin skiptist anddyri, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu og hurð út á svalir, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu í sameign. 
Nánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum sem ná alveg upp í loft.
Í opnu og björtu alrými með gólfsíðum gluggum og aukinni lofthæð er eldhús með fallegri innréttingu, eyju með spanhelluborði, skúffum og góðu geymsluplássi, og aðstöðu til að sytja við eyjuna. Í innréttingunni er innbyggður ísskápur, uppþvottavél og bakaraofn, gott bekkpláss er í eldhúsi.
Stofan er í í opnu flæði í framhaldi af eldhúsinu og rúmar vel bæði borðstofu og setustofu. gluggar snúa í austur með fallegu útsýni yfir borgina og til fjalla, svalir eru inndregnir og skjólsælar og hafa sól fram til ca 14.00 á sumrin.
Svefnhbergi er rúmgott með stórum og gólfsíðum gluggum en inn af því er fallega innréttað fatahbergi í stíl við aðrar innréttingar íbúðarinnar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, rúmgott með góðum "walk-in" sturtuklefa með innbyggðum blöndunartækjum, upphengdu salerni, innréttingu og spegli með lýsingu í.
Þvottahúsið er inn af eldhúsinu, þar er hvít innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, gólf flísalagt. 
Geymsla íbúðarinnar, 5,3 fm. er með mikilli loftæð, staðsett í sameign í kjallara, hún er snyrtileg með máluð gólf og biður upp á góða nýtingu m.t.t. lofthæðar.
Húsið var fullbyggt árið 2025 og má finnar ýmsar upplýsingar varðandi það á heimasíðunni www.g1.is 
Allar innréttingar voru sérsmíðaðar og komu frá Parka, á gólfum er vandað harðparket nema þar sem er flísalagt (baðherbergi og þvottahús).
Bílakjallar / bílastæði: Við húsið eru ekki bílastæði, en í kjallara eru 183 bílastæði sem eru til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig er hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslu fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir utnaumhald einfalt og auðvelt. Í fullbúnum bílakjallara verða hleðslustöðvar fyrir rafbíla. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 44 - íbúð 406
Bílastæði
Opið hús:26. okt. kl 17:00-17:30
Stefnisvogur 44 - íbúð 406
104 Reykjavík
95,4 m2
Fjölbýlishús
413
844 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb216 Heklureitur
Opið hús:25. okt. kl 13:00-14:00
Laugavegur 168 íb216 Heklureitur
105 Reykjavík
75,7 m2
Fjölbýlishús
312
1055 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb606 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:25. okt. kl 13:00-14:00
Laugavegur 168 íb606 Heklureitur
105 Reykjavík
98,4 m2
Fjölbýlishús
322
1239 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb602 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:25. okt. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb602 Heklureitur
105 Reykjavík
89 m2
Fjölbýlishús
212
1156 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin