Fasteignaleitin
Opið hús:07. júlí kl 16:30-17:30
Skráð 6. júlí 2026

Brekkuhvammur 10

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
166.5 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
750.150 kr./m2
Brunabótamat
74.550.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20741797
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð á eftirsóttum stað í nágrenni við miðbæ Hafnarfjarðar. Eignin er skráð alls 145,5 fm hjá HMS, þar af er íbúðarhluti 113,2 fm og bílskúr 32,3 fm. Að auki er glæsileg 21 fm sólstofa sem ekki er innifalin í skráðri fermetratölu, þannig að raunstærð eignarinnar er um 165,5 fm. Hér er um að ræða einstaklega snyrtilega og vel viðhaldna eign sem sameinar gott skipulag, rúmgóð rými og frábæra staðsetningu.

Forstofa er rúmgóð og flísalögð með gólfhita og fataskápum. Innaf forstofu er þvottaherbergi, flísalagt með gólfhita, gluggum, innréttingu með vaski og vinnuborði.
Hol er parketlagt og tengir saman helstu rými hússins á þægilegan hátt.
Eldhúsið er rúmgott og bjart, með gluggum í tvær áttir og góðri borðaðstöðu,  flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og háfur.
Svefnherbergin eru tvö; hjónaherbergi með fataskápum og barnaherbergi, parket á gólfum.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Þar eru flísar og mosaík á gólfum og veggjum, handklæðaofn, vegghengt salerni, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri, gluggi.  
Samliggjandi tvær stofur sem eru rúmgóðar og bjartar með gluggum í þrjár áttir. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á að útbúa auka svefnherbergi. Úr stofu er gengið í  sólskála.  Sólskálinn er parketlagður með gólfhita og tveimur útgöngum út í suðvestur og  eykur verulega við notagildi eignarinnar.
Undir forstofu og þvottaherbergi er um 14 fm geymsla sem ekki er innifalin í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Bílskúr er með göngudyrum og gluggum, hurðaopnari, hraðhleðslustöð, heitt og kald vatn.

Gluggar og gler á austurhlið hefur verið endurnýjuð, auk þess sem aðrir gluggar voru yfirfarnir og lagfærðir eftir þörfum,  heildaryfirbragð eignarinnar er afar gott.
Lóðin er 678 fm og að stórum hluta afgirt. Þar eru hellulagðar og steyptar stéttar með hitalögnum við inngang hússins Einnig eru falleg malarbeð með gróðri, vel hirtur garður. Á lóðinni er jafnframt matjurtargarður og um 12 fm gróðurhús. Innkeyrsla fyrir framan bílskúr og stétt meðfram honum eru hellulagðar og með hitalögnum.

Að sögn eiganda þá hefur eignin tekið miklum endurbótum á undanförnum árum og hefur verið talsvert endurnýjuð að innan síðustu 15 ár. Þar má nefna uppfært eldhús með innréttingum og tækjum, endurnýjað baðherbergi, gólfefni og innihurðir. Þá voru klóaklagnir frá húsi að brunni og þaðan út í götu endurnýjaðar fyrir um 10 árum. Rafmagnstöflur hafa verið uppfærðar og einnig hefur verið farið í endurbætur á ofnum og neysluvatnslögnum að hluta.

Í stuttri fjarlægð er fjölbreytt þjónusta, góðir matsölustaðir og líflegt menningarlíf með fjölmörgum viðburðum í miðbæ Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfast
ESS eignir eignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 35
Skoða eignina Hringbraut 35
Hringbraut 35
220 Hafnarfjörður
172.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
715
636 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 50
Skoða eignina Hverfisgata 50
Hverfisgata 50
220 Hafnarfjörður
233 m2
Einbýlishús
725
622 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavellir 16
Bílskúr
Skoða eignina Laugavellir 16
Laugavellir 16
700 Egilsstaðir
161.7 m2
Einbýlishús
424
494 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 7
Opið hús:09. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Áshamar 7
Áshamar 7
221 Hafnarfjörður
153.5 m2
Fjölbýlishús
423
792 þ.kr./m2
121.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin