Fasteignaleitin
Skráð 28. jan. 2026

Hafnarbraut 18

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
156.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
199.900.000 kr.
Fermetraverð
1.274.060 kr./m2
Fasteignamat
91.900.000 kr.
Mynd af Þorsteinn Yngvason
Þorsteinn Yngvason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2531585
Landnúmer
116308
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir 50,4
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
RE/MAX kynnir með stolti: Hafnarbraut 18. Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna á Kársnesi, 200 Kópavogi.

⭐️ Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48 til 194 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum.
⭐️ Íbúðirnar skilast fullbúnar með parketi. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki og sjálfstætt loftskiptikerfi. Aukin lofthæð, 270-290 cm.

Íbúð 504: Stórglæsileg þriggja herbergja, 156,9 m2 útsýnisíbúð á efstu hæð ásamt stæði í bílageymslu. Þaksvalir alls 50,4 m2 og þar af 14,8 m2 með svalalokun og tengi fyrir heitan pott. Vönduð Bambus klæðning á svalagólfi. Hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi, 290 cm lofthæð, gólfhiti og stórir gólfsíðir gluggar. 


⭐️ Kynningarvefur hússins ⭐️

Bókið skoðun, sýnum alla daga
Þorsteinn Yngvason, Lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 / thorsteinn@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson, Löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 / gj@remax.is

Elvar Frímann Frímannsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 659-6606 / elvar@remax.is

Ending og gæði voru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Hér eru helstu kostir við frágang:
✅ Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum íbúðum
✅ Sérsmíðaðar innréttingar, framleiddar og uppsettar af Brúnaás.
✅ Ítalskar kvarts borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum
✅ Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 270 – 290 cm
✅ Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél. Hreinlætistæki frá Grohe
✅ Vönduð og falleg álklæðning sem veðurkápa
✅ Sér þvottahús í flestum íbúðum
✅ Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni
✅ Vönduð svalalokun/skýli í völdum íbúðum

Húsið:
Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Byggingaraðili/aðalverktaki er Brúarbyggð ehf.

⭐️ Skilalýsing og tækjalisti seljanda ⭐️

Hönnun:
Arkitektar og aðalhönnuðir eru Skala: arkitektar
Burðarþolshönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Lagna- og loftræstihönnun: Verkfræðistofan Víðsjá
Raflagnahönnun: Sturla Snorrason
Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa
Eldvarnahönnun: ÖRUGG verkfræðistofa
Landslagshönnun og innanhússhönnun: Skala: arkitektar

Umhverfið:
Hverfið er rólegt og gróið og býr yfir miklum náttúrutöfrum. Skólar eru í næsta nágrenni og í göngu fjarlægð er bæði Sky lagoon og sundlaug Kópavogs. Þá eru nærri verslanir, heilbrigðisþjónusta að ógleymdum menningarperlum Kópavogs, Gerðasafni, Salnum og Kópavogskirkju sem er eitt af kennileitum bæjarins. Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn.

Skipulagsgjald: Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2531585
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugateigur 12
Bílskúr
Skoða eignina Laugateigur 12
Laugateigur 12
105 Reykjavík
146.6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
784 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsnesvegur 19
Bílskúr
Skoða eignina Vatnsnesvegur 19
Vatnsnesvegur 19
230 Reykjanesbær
168.8 m2
Fjölbýlishús
513
456 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1F 505
Grensásvegur 1F 505
108 Reykjavík
83.6 m2
Fjölbýlishús
211
1004 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A íb.708
Grensásvegur 1A íb.708
108 Reykjavík
115.4 m2
Fjölbýlishús
312
1386 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin