Fasteignaleitin
Skráð 2. nóv. 2026

Dugguvogur 15

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
72.2 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
44.900.000 kr.
Fermetraverð
621.884 kr./m2
Brunabótamat
37.450.000 kr.
Byggt 2022
Sérinng.
Fasteignanúmer
251207515
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Höfði fasteignasala kynnir til sölu eða leigu glæsilegt og vel staðsett atvinnu-/verslunarhúsnæði á tveimur hæðum að Dugguvogi 15. Um er að ræða bjart og stílhreint rými með mikilli lofthæð, háum gólfsíðum sýningargluggum og góðu auglýsingagildi. Viðmiðunarverð í leigu er kr.350.000. á mánuði. Ekki vsk. kvöð á eigninni. 

Húsnæðið er samtals 72,2 fm og skiptist í opið verslunar-/sýningarrými á jarðhæð og vel nýtta neðri hæð með eldhúsi, salerni með sturtu og rými sem getur nýst sem lager, starfsmannaaðstaða eða skrifstofa.

Á jarðhæð er bjart og opið rými með aukinni lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum og útgengi beint að götu. Rýmið er parketlagt og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir verslun, þjónustustarfsemi, sýningarsal, vinnustofu eða skrifstofu. Steypt loft og súla gefa rýminu nútímalegan og iðnaðarlegan karakter.

Stigi liggur niður á neðri hæð þar sem er flísalagt rými með eldhúsaðstöðu, geymslu-/lagerplássi og salerni með rúmgóðri sturtu. Eldhúsinnrétting er snyrtileg og búin helluborði og uppþvottavél. Neðri hæðin býður upp á góða möguleika sem starfsmannaaðstaða, bakrými eða skrifstofurými.
Húsnæðið er laust við kaupsamning.
  • Glæsilegt atvinnu-/verslunarhúsnæði á góðum stað
  • Samtals 72,2 fm
  • Bjart rými með aukinni lofthæð
  • Háir gólfsíðir sýningargluggar með góðu auglýsingagildi
  • Opið verslunar-/sýningarrými á jarðhæð
  • Neðri hæð með eldhúsi, salerni og sturtu
  • Lager, starfsmannaaðstaða eða skrifstofuaðstaða á neðri hæð
  • Gólfhiti í öllu rýminu
  • Eldhúsinnrétting með helluborði og uppþvottavél
  • Laust við kaupsamning.
Eignin Dugguvogur 15 er skráð hjá FMR: Eign nr. 251-2075, birt stærð 72,2 fm.
Nánari upplýsingar veitir: Bjarki Sigþórsson Sölumaður , í síma 8962798, tölvupóstur bjarki@hofdi.is.
Runólfur Gunnlaugsson viðsk.fr. lögg.fast á Höfða s. 892 7798. runolfur@hofdi.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 13
b-nordur-006.jpg
Skoða eignina Sjávarborg 13
Sjávarborg 13
105 Reykjavík
200 m2
Atvinnuhúsn.
12
Fasteignamat 1.066.100.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Síðumúli 31
Síðumúli 31 sameiginleg auglýsing.jpg
Skoða eignina Síðumúli 31
Síðumúli 31
108 Reykjavík
574,9 m2
Atvinnuhúsn.
33
426 þ.kr./m2
245.000.000 kr.
Skoða eignina Ármúli 1
20260515_140945.jpg
Skoða eignina Ármúli 1
Ármúli 1
108 Reykjavík
25 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 601.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 4A
img_20200710_110528.jpg
Suðurlandsbraut 4A
108 Reykjavík
385 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 76.350.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin