Fasteignaleitin
Skráð 12. feb. 2026

Efstahlíð 11

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
190 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
762.632 kr./m2
Fasteignamat
138.400.000 kr.
Brunabótamat
95.600.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2227177
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagðar í lagi.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Sagðar í lagi.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi.
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður sólpallur á baklóð.
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sérinngangur
Guðmundur H. Sveinsson, aðstoðarmaður fasteignasala, Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna með stolti í einkasölu Efstuhlíð 11, 221 Hafnarfirði: 

Hér er um að ræða fallegt og mikið endurnýjað 5 herbergja fjölskylduhús á tveimur hæðum. Húsið er staðsett innarlega í rólegum botnlanga á vinsælum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í bæði leik- og grunnskóla. Samkvæmt skráningu er húsið 190 fm, þar af er íbúðarhluti 159,3 fm og bílskúr 30,7 fm. Húsið var byggt árið 1996 og stendur á 762,9 fm lóð. Fallegur suðurgarður með stórum sólpalli og heitum potti – algjör sælureitur.

Skipulag eignar: Forstofa, stofa / borðstofa, sjónvarpshol, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, bílskúr og stór garður með heitum potti.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing:
Jarðhæð 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með nýlegum fataskáp.
Hol: Tekur við af forstofu, parketlagt og bjart. Þaðan er gengið í önnur rými neðri hæðar og upp steyptan stiga til efri hæðar.
Stofa / borðstofa / setustofa: Bjartar og rúmgóðar samliggjandi stofur með parketi á gólfi. Gluggar snúa til suðurs og útgengt er beint í garðinn.
Svefnherbergi 1: Staðsett á neðri hæð, með parketi og nýlegum fataskáp.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús með góðri innréttingu og opnanlegum glugga. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gestasalerni: Staðsett út frá holi, flísalagt og snyrtilegt.
Eldhús: Nýlega endurnýjað og bjart með hvítri U-laga innréttingu frá Innlifun, spanhelluborði og flísalögðu gólfi.
Garður: Mjög fallegur garður sem snýr til suðurs, með skjólgóðum sólpalli og heitum potti.

Efri hæð:
Svefnherbergi 2 (Hjónaherbergi): Rúmgott með fataskáp, parketi og aukaplássi á litlu háalofti.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi með mikilli lofthæð, nýlegum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott herbergi með mikilli lofthæð, nýlegum fataskáp og parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: Miðrými hæðarinnar nýtist vel sem sjónvarpshol. Þaðan er útgengt á svalir sem snúa til suðurs.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, handklæðaofni og "walk-in" sturtu.
Bílskúr og garður:
Garður:
 Sunnan við húsið er sérlega fallegur og gróinn garður með skjólgóðum sólpalli og heitum potti – algjör sælureitur.
Bílskúr: Rúmgóður (30,7 fm) með hita, rafmagni og bæði heitu og köldu vatni. Gott milliloft nýtist sem geymsla. 
Nýlega hellulagt bílaplan er fyrir framan íbúðarhúsnæðið.

Helstu endurbætur að sögn eiganda:
  • 2021 Bílaplan endurnýjað og stækkað.
  • 2023 Skipt um öll gólfefni í íbúðarhúsnæðinu. 
  • 2023 Skipt um allar innihurðar í íbúðarhúsnæðinu. 
  • 2023 Eldhús endurnýjað. 
  • 2023 Baðherbergi endurnýjað.
  • Búið að endurnýja ca 70% af gleri í gluggum.
Flott og vel skipulögð fimm herbergja fjölskyldueign á tveim hæðum á þessum rólega og fjölskylduvæna stað í Setberginu.  Öll helsta þjónusta er í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða,

Vakin er athygli á að eigandi fasteignarinnar fellur undir lagaákvæði er snýr að tengslum við fasteignasalann/starfsmann fasteignasala skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015, lög um sölu fasteigna og skipa. Um er að ræða mág fasteignasala.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
Guðmundur H Sveinsson, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 896-4967 eða á netfangið ghs@helgafellfasteignasala.is.
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893-3276 eða á netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/12/201445.150.000 kr.48.000.000 kr.190 m2252.631 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1996
3.1 m2
Fasteignanúmer
2227177
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.150.000 kr.

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 60
Bílskúr
Skoða eignina Skipholt 60
Skipholt 60
105 Reykjavík
160.4 m2
Fjölbýlishús
514
791 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Daggarvellir 1
3D Sýn
Opið hús:10. mars kl 16:00-16:30
Skoða eignina Daggarvellir 1
Daggarvellir 1
221 Hafnarfjörður
120.1 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 7b
3D Sýn
Opið hús:10. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hringhamar 7b
Hringhamar 7b
221 Hafnarfjörður
73.3 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 306
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 306
221 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
413
769 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin