Fasteignaleitin
Skráð 16. apríl 2026

Geirþrúðarhagi 3

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
138.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
816.932 kr./m2
Fasteignamat
93.350.000 kr.
Brunabótamat
72.470.000 kr.
Mynd af Svala Jónsdóttir
Svala Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
fsfasteignirEignalisti
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2500387
Landnúmer
225590
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
steyptur pallur fyrir framan hús
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Geirþrúðarhagi 3d 
***  Eignin getur verið laus fljótlega ***

Mjög björt og falleg þriggja herbergja 138,2m2 raðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr í Hagahverfi.  

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús, geymslu sem nýtist í dag sem svefnherbergi og bílskúr.

Innréttingar og fataskápar eru allar mjög vandaðar í ljósum litum, plastlagðar með hvítu og ljósum viðarlit.
Innihurðir eru hvítar.
Á gólfum er harðparket og flísar.

Forstofa er með gráum flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús er með hvítri  innréttingu sem er römmuð inn með ljósum viðtalit og eldunareyja. AEG helluborð og ofn. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu, harðpaket á gólfi, hurð til suðurs út á tæplega 40 m² steypta verönd með steyptum skjólveggjum og geymsluskúr.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem loft eru tekin upp og harðparket á gólfi. Úr stofu stofu eru hurð út á baklóð.
Baðherbergi  flísar eru á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með  harðparketi á gólfi og fataskápum.
Geymsla/herbergi  harðparket á gólfi og fataskápur.  ( Nýtist sem herbergi í dag)
Þvottahús er á tengigangi milli forstofu og bílskúrs. Þar eru gráar flísar og plastlögð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsinu.
Bílskúr er skráður 27,1 m² að stærð. Þar eru flísar á gólfi og loft er tekið upp.

Annað
- Allar innréttingar eru frá Tak-innréttingum.
- Stórt steypt bílaplan með hitalögnum í, lokað kerfi.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Loftskiptikerfi er í húsinu.

Nánari upplýsingar í síma 571-9991 eða á fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/06/201950.500.000 kr.58.500.000 kr.138.2 m2423.299 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
27.1 m2
Fasteignanúmer
2500387
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
09
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.620.000 kr.

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Hjallabraut 45A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 5
Bílskúr
Skoða eignina Akurgerði 5
Akurgerði 5
108 Reykjavík
122.2 m2
Einbýlishús
413
1014 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin