Betri Stofan fasteignasala og Jason Ólafsson fasteignasli kynnir: Glæsilegar útsýnisíbúðir í fjölbreyttum stærðum við Heklureit þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn og auka útsýni. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Íbúðir á efri hæðum hafa eigin þakgarða en sameiginlegur þakgarður verður einnig fyrir alla íbúa í húsinu ásamt fallegum inngarði. Frábær staðsetning í miðborginni en þó fjarri skarkala miðbæjarins.
Íbúð 404 er rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í 8. hæða húsi, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Samtals 104,2 fermetrar. Svalir til suðurs (7,2 fm) og norðurs (4,3 fm) og skiptist íbúðin í 2 svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi og sér þvottahús. Gólfhiti er í íbúðinni. Sérgeymsla fylgir að stærðinni 7,7 fm. Stæði merkt B44 í bílakjallara fylgir íbúðinni.
Eignin afhendist í september 2025. HeimasíðaHúsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.isHlynur Bjarnason, sími 697 9215 / hlynur@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 / dagrun@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 / atli@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 / gunnar@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 / pall@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 / gudbjorg@betristofan.is