Borgir fasteignasala kynnir eignina Klyfjasel 20, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 205-7475 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Klyfjasel 20 er samkvæmt FMR 244.2fm fjölskylduvænt einbýlishús á þremur hæðum sem stendur efst við rólegan botlanga í grónu hverfi. Fyrir aftan húsið tekur á móti þér stórt opið svæði og falleg náttúra sem skapar einstaka nálægð við útivist og friðsælt umhverfi. Á lóðinni er möguleiki á að byggja aukabyggingu, sem opnar á frelari nýtingamöguleika fyrir framtíðar eigendur.
Um er að ræða innbyggðan bílskúr sem búið er að innrétta sem snyrtilega íbúðaraðstöðu með sér inngangi sem er utan fermetratölu og er því raunstærð nær 270fm.
Seljendur skoða skipti á minni eign. - Baðherbergi á jarðhæð var tekið í gegn árið 2014
- Skipt var um öll gler á miðhæðinni árið 2016
- Húsið málað að utan 2018
- Skipt var um gler á jarðhæð 2018-2019
- Lagnagrind og rafmagn í húsi endurnýjað 2018
- Ofnar á efri tveim hæðum hússins voru settir upp 2017 og 2018
- Steypuviðgerðir fóru fram á húsinu 2018 og 2019
- Eldhústæki, borðplata og vaskur endurnýjað 2018
- Íbúðaraðstaða á jarðhæð var kláruð í janúar 2019 með nýjum innréttingum og gólfefnum. Einnig skipt um gler 2018-2019
- Þakið málað 2024
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123,tölvupóstur bjarklind@borgir.isNánari lýsing eignar:Jarðhæð:Anddyri: Flísalagt með góðum fataskáp.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á veggjum og gólfi, handklæðaofni, upphengdu salerni og innangengri sturtu.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi
Tvær rúmgóðar geymslur, stigi með teppi.
Miðhæð:Stofa/borðstofa: Í björtu og mjög rúmgóðu rými með harð parket á gólfi. Útgengt er á tveimur stöðum, annars vegar á mjög rúmgóðar suðursvalir með nýju handriði og hinsvegar úr stofu út í stóran og fallegan garð.
Eldhús: Þar sem gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, bakarofni í vinnuhæð og helluborði.
Þvottahús: Er flísalagt með útgengi í garð. Gott skápapláss og vaskur. Flísar á gólfi.
Efsta hæð:Baðherbergi: Með baðkari, tveimur vöskum, gert er ráð fyrir sturtu.
Svefnherbergi I: Með fjórföldum fataskáp harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með harðparketi á gólfi.
Góður gangur/sjónvarpshol á milli herbergja með harðparketi á gólfi, þar er hægt að ganga út á svalir til norðversturs með fallegur útsýni.
Aukaíbúðaraðstaða með sérinngangi:Íbúðaraðstaðan á jarðhæð skiptist í stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi.
Hluti íbúðaraðstöðu er ekki innifalin í uppgefinni fermetratölu hússins.
Umhverfi: Stutt er í leikskóla, skóla og verslun. Ósnortin náttúra er aftan við húsið.