Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 13a íb505

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
132.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
1.358.491 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð · efsta
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2242821_505
Landnúmer
178919
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með fallegu útsýni og tvennum svölum til suðvesturs og austurs. Íbúðin er við Bakkabraut 13A, merkt 0505, á 5. hæð (efstu). Eignin er staðsett við sjávarsíðuna á Kársnesi, í næsta nágrenni við smábátahöfnina. Íbúðin er björt og vel skipulögð, með stórum gluggum, aukinni lofthæð, tveimur svefnherbergjum, þar af hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, auk annars baðherbergis, rúmgóðu alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpskrók og eldhúsi, sérþvottahúsi og forstofu. Eignin er samtals 132,5 m², þar af er íbúðin 123,5 m² og sérgeymsla í kjallara 9,0 m². Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara, merkt B30. Íbúðin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is 
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins VESTURBAKKI

Nánari lýsing íbúðar 505: Gengið er inn í forstofu og þaðan inn í bjart og opið alrými með aukinni lofthæð, þar sem rúmgóð stofa, borðstofa, sjónvarpskrókur og eldhús með eyju mynda fallega heild. Eldhúsið er með góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið og bjóða upp á fallegt útsýni. Frá alrýminu er útgengt á 9,3 m² suðvestursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, þar af rúmgóð hjónasvíta með innangengu fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á 7,0 m² austursvalir. Hitt svefnherbergið er einnig rúmgott. Auk þess er annað baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar.

Afhending íbúðar 505: Auglýst verð miðast við afhendingu íbúðarinnar tilbúinnar til innréttinga, sem gefur kaupendum kost á að haga hönnun og efnisvali eftir eigin stíl og óskum. Einnig er í boði að fá íbúðina afhenta fullbúna án megingólfefna á 200.000.000 kr. Við þau skil geta kaupendur valið á milli tveggja hönnunarþema, Yls og Steins. Nánari upplýsingar um afhendingarástand og endanleg skil er að finna í skilalýsingu seljanda.

Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is 
Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á sölusíðu Vesturbakka.

Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.

Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.

Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptakerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.

Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2242821_505

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hrísmóar 9
Skoða eignina Hrísmóar 9
Hrísmóar 9
210 Garðabær
148,5 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Hafnarbraut 12G
200 Kópavogur
80,2 m2
Fjölbýlishús
312
921 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllahraun 42
Á einni hæð
Skoða eignina Tröllahraun 42
Tröllahraun 42
810 Hveragerði
115,1 m2
Raðhús
413
468 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Eiríksgata 19 Efri hæð
Eiríksgata 19 Efri hæð
101 Reykjavík
130,4 m2
Fjölbýlishús
422
958 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin