LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:BÚSTAÐUR GÆTI FENGIST AFHENT NOKKUÐ FLJÓTT.Um er að ræða sumarbústað á gróinni lóð og skjólsælum stað við Hólmasund í Hraunborgum, Grímsnes- og Grafningshreppi. Bústaðurinn stendur á 5000 fm gróinni lóð sem er leigulóð og er lóðarleigan ca. kr. 140.000 á ári, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 2024.
Bústaðurinn er byggður árið 1988 og stendur á steyptum stólpum, hann er skráður 46,8 fm skv HMS. Rafmagnskynding er í húsinu. Rotþró er við húsið. Kalt vatn er tengt inn í húsið en hitaveita er á svæðinu sem væri hægt að tengja við húsið.
Húsið fæst afhent fljótlega og getur allt innbú fylgt að undanskildum persónulegum munum.Húsið þarfnast orðið viðhalds en kringum húsið er timbuverönd sem þarf að endurnýja að hluta til, einnig er kominn tími á endurnýjun á þaki og þakkanti.
Bústaðurinn skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, salerni með vaski og geymslu sem er bæði hægt að ganga í utan frá og innan frá.
Nánari lýsing:
Gengið er inní húsið af verönd inn í stofu/borðstofu, veröndin liggur kringum húsið.
Eldhús er nú þar sem áður var svefnherbergi, möguleiki á að færa eldhús aftur inn í stofu/borðstofu og fá þá 3ja herbergið. Eldavél, lítil uppvöskunarvél uppi á borði.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu, annað með rúmi og hitt með rúmi og kojum.
Salerni með nettum vaski. (ekki er sturta í húsinu).
Við hlið húss er ágætis
geymsla og er gengið í hana utan frá en einnig hægt að ganga í hana innan frá (úr stofu/borðstofu).
Lóðin er virkilega skjólgóð með miklum gróðri, háum trjám og vel gróin. Aðkoma frá bílaplani að húsi er eftir upphækkaðri timbur gönguleið sem tengist verönd við húsið.
Hraunborgir sumarhúsasvæðið er með öryggishliði og er þetta hús innan þess svæðis, hitaveita er komin á á svæðið og er búið að leggja hana að lóðarmörkum.
Öflugt sumarhúsafélag er rekið á svæðinu og er árgjald í það kr. 17.000.-
Öflug ferðaþjónusta er einnig rekin í Hraunborgum en þar er sundlaug, golfvöllur, veitingarstaður o.fl.
Mjög stutt er á 3 golfvelli, útivistar og göngusvæði.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat