Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Sogsbakka 5 - sumarhús í Grímsnes og Grafningshreppi.
Sogsbakki 5 er glæsilegt heilsárshús á stórri eignarlóð í landi Ásgarðs við Sogið. Húsið skiptist í forstofu, stofu/eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og svefnloft. Í húsinu er hitaveita og gólfhiti. Á lóðinni, sem er vaxin kjarrgróðri, er einnig lítill geymsluskúr byggður úr bjálkum, u.þ.b. 6 m². Húsið er skráð skv. þjóðskrá 89,2 m² og stendur á eignarlóð sem er skráð alls 6.400 m².
Nánari lýsing: Gengið er inn í parketlagða forstofu með góðum skápum. Gangur inn af forstofu er einnig parketlagður. Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með góðum skápum og parket á gólfum. Baðherbergið er dúklagt og ágætlega rúmgott, góð baðinnrétting, sturtuklefi og upphengt salerni. Inn af baðherberginu er gott rými með góðri innréttingu sem nýtist sem þvottahús / geymsla. Úr þessu rými er útgengt á sólpallinn við heita pottinn. Stofa og eldhús eru í stóru og björtu parketlögðu rými með extra góðri lofthæð. Eldhús er með góðri viðarinnréttingu, vönduðum tækjum og góðu skápaplássi. Úr stofu er gengið út á stóran sólpall. Yfir hluta hússins er gott parketlagt svefnloft og er góður stigi þangað upp frá ganginum. Góður opnanlegur gluggi er á svefnloftinu.
Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi og þvottahúsi sem er dúklagt. Veggir eru panelklæddir. Sólpallurinn er stór og góður og umlykur húsið á þrjá vegu. Á Sólpallinum er heitur pottur á skjólgóðum stað. Við pottinn er útisturta. Við húsið er nægt bílastæðapláss og gott aðgengi.
Á þessu svæði er auðvelt að sækja afþreyingu og þjónustu. Gönguleiðir eru víða, stutt í sundlaugar, veiði, golf og fleira. Ekki er langt að sækja í ferðamannastaði og náttúruperlur suðurlands, s.s. Gullfoss, Geysi, Skálholt, Laugarvatn o.s.frv. Ekki þarf að keyra nema u.þ.b. 16 km. til Selfoss með alla sína þjónustu.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.