Fasteignaleitin
Skráð 16. nóv. 2026

Melaheiði 17

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
302.6 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
185.000.000 kr.
Fermetraverð
611.368 kr./m2
Fasteignamat
166.250.000 kr.
Brunabótamat
131.250.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 1970
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064257
Landnúmer
115607
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 271,5 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með möguleika á aukaíbúð í kjallara auk 31,1 fermetra frístandandi bílskúrs á mjög fallegum, eftirsóttum og rólegum stað við opið svæði við Melaheiði í Kópavogi.  Mögulegt væri að innrétta aukaíbúð í hluta eða öllum kjallara hússins.

Eignin verður sýnd skv. tímapöntunum.

Lýsing eignar:
Hér er um að ræða fasteignina nr. 17 við Melaheiði í Kópavogi,  sem er einbýlishús á tveimur hæðum, kjallari og hæð, 271,5 fermetrar að stærð auk 31,1 fermetra bílskúrs.  
 
Eignin skiptist þannig:

Aðalhæð:  Forstofa flísalögð og með fatahengi. Barnaherbergi I, innaf forstofu, parketlagt. Gestasnyrting, flísalagt gólf og veggir. Hol, parketlagt. Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með miklum gluggum til suðurs og útgengi á flísalagða rúmgóða og skjólsæla verönd til suðurs og þaðan niður á lóð. Eldhús, korklagt og mjög rúmgott með góðri borðaðstöðu og fallegu útsýni til norðurs. Upprunalegar fallegar innréttingar með viðarborðplötu, flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Búr, innaf eldhús, korklagt, gluggi og hillur. Svefngangur, parketlagður. Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum ( á teikningum tvö herbergi). Barnaherbergi III, dúklagt og með innbyggðum fataskápum. Baðherbergi, með glugga, dúklagt gólf og flísalagðir veggir, innrétting og baðkar. Hjónaherbergi, parketlagt og með innbyggðum fataskápum.
Kjallari, sem bæði er innangengt í úr eldhúsi um steyptan og dúklagðan stiga og einnig er með tveimur sérinngöngum af fram- og baklóð skiptist þannig: Forstofa / hol við inngang af baklóð er rúmgott, flísalagt. Þvottaherbergi, rúmgott og með glugg, flísalagt gólf, vinnuborð og vaskur. Inntaksrými, innaf þvottaherbergi, flísalagt gólf, gluggi og sturta. Hol, flísalagt og rúmgott. Snyrting, flísalagt gólf. Herbergi, dúklagt. Geymsla, með hillum. Stofa, stór, harðparketlögð. Alrými með stofu og eldhúsi, harðparketlagt og með útgengi á framlóð um tvöfalda hurð. Innrréting í rýminu er ljós spónlögð og tæki virðast nýleg. Herbergi, innaf alrými, parketlagt og með fataskápum.
 
Bílskúr, sem er frístandandi á lóð, er 31,1 fermetri að stærð, einangraður, upphitaður og bæði með gluggum og göngudyrum. Rafmótor er á bílskúrshurð og gryfja er í bílskúr.
 
Húsið að utan lítur ágætlega út sem og þakjárn, þakkantur, gler og gluggar. Þó þarf að fara að huga að einhverjum múrviðgerðum og eins þarf amk að skipta um nokkur gler í húsinu. Bílskúr lítur ágætlega út að utan.  
 
Lóðin, sem er 640,0 fermetrar að stærð, er leigulóð frá Kópavogsbæ,  með hellulögðum stéttum og innkeyrslu á framlóð auk tyrfðrar flatar og tjárgróðurs. Baklóð er tyrfð og á henni er lítill heitur pottur.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og rólegum útsýnisstað við opið svæði þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.
 
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1978
31.1 m2
Fasteignanúmer
2064257
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.650.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Örvasalir 5
Bílskúr
Skoða eignina Örvasalir 5
Örvasalir 5
201 Kópavogur
278,5 m2
Einbýlishús
625
861 þ.kr./m2
239.900.000 kr.
Skoða eignina Starhólmi 18
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Starhólmi 18
Starhólmi 18
200 Kópavogur
268,6 m2
Einbýlishús
926
707 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Básendi 10
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Básendi 10
Básendi 10
108 Reykjavík
245,9 m2
Einbýlishús
624
Fasteignamat 107.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Grundarás 12
Bílskúr
Opið hús:22. nóv. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Grundarás 12
Grundarás 12
110 Reykjavík
284,3 m2
Raðhús
634
527 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin