LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega, vel skipulagða, og rúmgóða 3. herbergja 117,5 m2 endaíbúð á 5. hæð ( efstu ) við Sóleyjarima 19 með stórkostlegu útsýni. Samkvæmt HMS er íbúðarhlutinn skráður 108,5 m2 ásamt 9 m2 geymslu. Heimilt er einungis að selja íbúðina til einstaklinga 50 ára og eldri
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi , eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla í sameign og stæði í bílakjallara.
Nánari lýsing:
Forstofan er björt og rúmgóð með flísalögðu gólfi og innbyggðum fataskáp.
Stofa-borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir með svalalokunum.
Sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Brúnás með steinborðplötu og flísum á milli skápa, Ofn í vinnuhæð, helluborð með viftu yfir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu, eldhústæki frá AEG, parket á gólfi
Hjónaherbergið er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi. Gluggar á tvo vegu.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum,innrétting frá Brúnás með steinborðplötu , sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn,
Þvottahús með flísalögðu gólfi , borðplata með skolvaski, hvítar innréttingar, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í kjallara með máluðu gólfi.
Hjólageymsla: sameiginleg á jarðhæð.
Húsið er klætt álklæðningu að utan. Næg bílastæði eru á lóð. Eignin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í fallegar gönguleiðir, leiksvæði og útivistarsvæði, en jafnframt nálægt skóla, og allri helstu þjónustu.
Í nágrenninu er öll helsta þjónusta eins og Spöngin með allri sinni þjónustu, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug og skemmtilegar gönguleiðir
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is