BYR fasteignasala kynnir HNJÚKAMÓI 4 ÍBÚÐ 201, Ölfusi. Ný þriggja herbergja íbúð á efri hæð, góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn Ölfusi, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ BYR FASTEIGNASÖLU s. 483-5800.** EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU, fullbúin án megin gólfefna.
** ÍBÚÐIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.
** Íbúðin er 70.5 m² þar af geymsla 6.7 m² samkvæmt skráningu HMS. ** Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla.
MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - SMELLIÐ HÉR FYRIR UPPLÝSINGAR UM HLUTDEILDARLÁN.
Í Móabyggð rís ný lágstemmd byggð tveggja hæða fjölbýlishúsa, allar íbúðir hafa sér inngang og sér bílastæði með möguleika á uppsetningu hleðslustöðva. 6-8 íbúðir eru í hverju húsi.Nánar um íbúð: Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á svalir frá stofu.
Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, Melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum. Skúffur með mjúklokun.
Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti.
Svefnherbergin eru tvö. Bæði herbergin eru með HTH fataskápum, fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar
Baðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Sér geymsla er í sameiginlegu geymslurými.
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggja að bílastæðum. Nánar um húsið. Hnjúkamói 2 er átta íbúða tvílyft hús. Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði.
Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru fjórar íbúðir og fjórar geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými.
Móabyggð fyrsti áfangi, afmarkast af Hnjúkamóa í suðri, Klettamóa í norðri og Rásamóa í austri. Göturnar Hnjúkamói og Klettamói eru tengdar saman með vistgötum.
Malbikuð bílastæði eru við Hnjúkamóa, Klettamóa, Rásamóa og í vistgötum. Auk þess eru gestastæði á svæðinu. Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.
LJÓSMYNDIR ERU ÚR SAMBÆRILEGRI EIGN Í SAMBÆRULEGU HÚSI FRÁ SAMA VERKTAKA OG ER ÞVÍ EINGÖNGU TIIL VIÐMIÐUNAR.
Tölvuteikningar eru eingöngu til viðmiðunar, en endurspegla ekki endilega endanlegt útlit eignarinnar.
Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.