ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
NÝJAR ÍBÚÐIR Í URRIÐAHOLTI LAUSAR TIL AFHENDINGAR.
Um er að ræða nýja fjögurra herbergja 139.3 fm íbúð á þriðju hæð við Lautargötu 5 í Urriðaholti sem að er nýjasta hverfi Garðabæjar.
Íbúðin er í nýju 10 íbúða lyftufjölbýli á útsýnislóð þaðan sem að stutt er í gönguleiðir í náttúrunni og upp í Heiðmörk.
Aukin lofthæð er í íbúð á þriðju (efstu hæð) og síðari gluggar sem að gefur meiri birtu í rými.
Húseignin sem er virkilega vönduð í alla staði stendur neðan götu og á jaðarlóð.
ÍBÚÐ ER AFHENT FULLBÚIN AÐ ÖLLU LEYTI OG ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:Íbúð er 139.3 fm merkt 01-03-03 og er geymsla í sameign.
Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR MÁ FINNA Á
SÖLUSÍÐU LAUTARGÖTU 5.Eignin skiptist í:Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu.
Nánari lýsing á eign:Forstofa með fataskáp.
Björt og rúmgóð stofa/borðstofa þaðan sem að útgengt er á suð-vestur svalir.
Stofa/borðstofa og eldhús er í í opnu og björtu rými með vandaðri eldhúsinnréttingu frá HTH með efri og neðri skápum, KVART-steinn í borðplötum, eldhústæki frá AEG, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu..
Þrjú svefnherbergi sem að eru rúmgóð og með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og veggjum upp í loft, WALK-IN sturtuklefi með glerskilrúmi og eru innbyggð blöndunartæki í vegg, snyrtileg innrétting undir vask með góðum hirslum, KVART-steinn í borðplötu, vegghengt salerni, handklæðaofn á vegg.
Þvottaherbergi er rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í sameign. Sameiginleg geymsla í kjallara og á hæð við inngang í hús.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
Nánar um íbúðir og húseign:-Traustur byggingaraðili.
- Innréttingar eru frá HTH og kvartsteinn í eldhúsi og baðherbergi frá HQ Steinsmíði.
- Vönduð heimilistæki frá AEG.
- Aukin lofthæð í íbúðum.
- 10 íbúðir í stigaganginum.
- Loftskiptakerfi í öllum íbúðum.
- Allar íbúðir með suðvestur svölum.
- Snjóbræðsla er á göngusvæði.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni þegar það verður lagt á sem að er 0.3% af brunabótarmati.MYNDIR AF ÍBÚÐ Á VEF ERU AF SÝNINGARÍBÚÐ OG ENDURSPEGLA EKKI ENDANLEGA ÞÁ ÍBÚÐ SEM ER LÝST HÉR AÐ OFAN OG ÞÁ ER ÁTT VIÐ STÆRÐ OG SKIPULAG.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.