LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja 107,8 fm íbúð á EFSTU hæð ásamt rúmgóðu rislofti á besta stað í hjarta Vesturbæjar. Þrjú svefnherbergi með herbergi sem er í risinu. Örstutt í Vesturbæjarlaugina, KR völlinn, Melabúðina, skóla og fl. Skemmtileg eign á eftirsóttum stað.
Samkv. FMR skiptist eignin: Íbúð á hæð: 76 fm, Risloft: 28,8 fm, Geymsla: 3 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er: 75.750.000,-
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.
Nánari lýsing:
Komið er inní í hol með stórum fataskáp. Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, eldunartækjum, uppþvottavél og góðum borðkrók. Vínildúkur á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskáp í einu svefnherberginu. Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu. Stór og björt stofa og borðstofa með suðvestursvölum þaðan sem er mikið útsýni. Frá stofu er fallegur timburstigi upp á risloft.
Risloftið er eitt stórt opið rými eða 28,8 fm. Undir súð eru góðar geymslur. Í dag er risið nýtt sem svefnherbergi, sjónvarpshol og geymslurými. Fjórir góðir Velux þakgluggar. Gólfflötur er í raun mun stærri þar sem hluti er undir súð.
Í kjallara er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Gólfefni: Parket er á öllum gólfum nema nema vínildúkur í eldhúsi og flísar á baðherbergi.
Lóðin: Garðurinn er sameiginlegur. Bílastæði er malbikað og göngustígar hellulagðir. Góður fjöldi bílastæða er fyrir framan húsið.
Húsinu hefur verið haldið vel við síðustu ár:
2012: Stigagangur málaður og skipt um teppi.
2013: Skólp og frárennsli endurnýjað.
2014: Eldhúsið var endurnýjað.
2022-2025: Skipt um glugga og gler sem þurfti, (4 gluggar í íbúðinni), múrviðgert og málað, steypuviðgerðir á svalagólfum. Þak málað. Hitalögn sett undir hellur fyrir framan hús.
Vel staðsett eign í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.