Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s.893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Mjög fallega, bjarta og rúmgóða 3ja herbergja 102,6 fm endaíbúð á 4ju hæð í lyftuhúsi á þessum vinsæla stað við miðborgina. Að auki fylgir eitt gott stæði í bílahúsi. (nr.6) Svalir í suðvestur. Næg bílastæði og góð aðkoma. Stutt í alla þjónustu, verslanir ofl. Lyftuhúsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Útsýni. Eignin skiptist m.a. þannig: Forstofa,skápur, hol, rúmgóð
stofa og borðstofa, fallegt eldhús opið inn í stofurýmin. mosaik flísar á milli skápa. Ísskápur, ný uppþvottavél, fylgir.
Svefnálma: Rúmgott
hjónaherbergi með skáp og
gott barnaherbergi með skáp.
Góð
geymsla með hillum og þvottaherbergi með hillum. Fallegt
baðherbergi með baðkari/sturtuaðstöðu, falleg innrétting, flísar í hólf og gólf.
Ljóst parket á gólfum. Sérlega snyrtileg hefðbundin sameign og fallegur garður.
Sér geymsla er í sameign.
Loftljós föst fylgja og allar rúllugardínur.
Fasteignamat 2025 er 85.300.000.- Fasteignamat næsta árs er 92.400.000.-
Þetta er mjög áhugaverð eign til að skoða frekar ! Nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.isFreyja M Sigurðard. lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983 og fagnar því 42 ára afmæli á árinuHraunhamar í farabroddi í 42 ár! – Hraunhamar.is