Fasteignaleitin
Opið hús:26. júní kl 17:00-17:30
Skráð 23. júní 2025
Deila eign
Deila

Bogahlíð 20

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
116.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
726.884 kr./m2
Fasteignamat
77.850.000 kr.
Brunabótamat
54.250.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1958
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2031366
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Endurnýjað að mestu
Raflagnir
Endurnýjað að mestu
Frárennslislagnir
Endurnýjað að mestu
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
?
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
8,79
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG og Margrét Rós, lgf kynna í sölu fallega og töluvert endurnýjaða 4-5 herbergja íbúð með gluggum á fjóra vegu og útgengi á góðar suður svalir með fallegu útsýni við Bogahlíð 20, 105 Reykjavík. Um er að ræða vel staðsetta eign á þriðju og efstu hæð í góðu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi á vinsælum stað í Hlíðunum. Eignin telur þrjú svefnherbergi, forstofu og gang, eldhús, stofu og borðsstofu með útgengi á suður svalir og baðherbergi. Stór geymsla í kjallara með glugga og opnanlegu fagi ásamt sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymslu. Sérmerkt stæði á bílaplani tilheyrir eigninni. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***  

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 116,8 m² þar af er íbúð skráð 101,9 m² og sér geymsla í kjallara 14,9 m² - Fasteignamat næsta árs: 84.550.000.- kr

Frábær staðsetning í rótgrónu og vinsælu hverfi í Hlíðunum þar sem öll helsta þjónusta og verslanir eru í göngufæri. Leikskóli, grunn,- og menntaskóli ásamt fjölbreyttu íþróttastarfi er í nágrenni. Stutt er í miðbæ Reykjavíkur ásamt góð útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir til að njóta útiverunnar.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa/ gangur: Komið er inn í rúmgóða forstofu með hvítum fataskáp og flísum á gólfi.
Borðstofa/stofa: Björt og rúmgóða samliggjandi borðstofa og stofa með parket á gólfi og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Fallegt útsýni frá stofu bæði til suðurs og vesturs. 
Eldhús: Rúmgott eldhús opið við borðstofu með fallegri hvitri eldhúsinnréttingu og Corean borðplötu, innbyggðri uppþvottavél, stóru spanhelluborði og háf. Dökkar flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott með vönduðum fataskápum og parket á gólfi (nýtt sem barnaherbergi í dag).
Svefnherbergi 2: Rúmgott og bjart með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Inn af stofu er rúmgott herbergi með fataskáp og parket á gólfi (nýtt sem hjónaherbergi í dag).
Baðherbergi: Bjart með opnanlegum glugga, hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni og flísar á veggjum og gólfi. 
Svefnherbergisgangur: Með rúmgóðum fataskápum og flísum á gólfi.
Geymsla: Inn af sameignagangi í kjallara er 14,9 m2 geymsla, gluggi með opnanlegu fagi, rafmagnstengill, hillur, flísar á gólfi.
Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegu þvottahús, tvö þurrkherbergi, vagna- og hjólageymsla, tenglar fyrir þvottavél og þurrkara.
Lóð: Skjólgóð gróinn lóð mót suðri, steypt stétt að húsi, sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni og í húsinu eru fjögur gestastæði. 

Ath íbúðin er nýtt sem 4ra herbergja íbúð í dag, en samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir fjórða svefnherberginu þar sem borðstofan er í dag. 

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR

Framkvæmdir og viðhald á íbúð og húsi undanfarin ár skv. fyrri söluskráningu og að sögn eigenda:
- Íbúð -

2007 - eldhús endurnýjað með nýrri eldhúsinnréttingu, borðplötu og eldhústækjum.
2007 - Gólfefni endurnýjuð í forstofu, svefnherbergisgangi og eldhúsi með flísum.
2007 - Fataskápar endurnýjaðir í einu svefnherbergi, svefnherbergisgangi og forstofu. 
2014 - Endurnýjað gler (hamrað), glerlista og opnanlegt fag í glugga á baðherbergi.
2015 - Nýtt gler í stofuglugga, sólbekkur og listar endurnýjaðir, öll timburklæðningin við svalir endurnýjuð og máluð og  svalahurð yfirfarin.
2017 - Baðherbergi endurnýjað með upphengdu salerni, vaski og innréttingu, blöndunartæki í sturtu, sturtugleri og handklæðaofni. Lagnir endurnýjaðar, veggir og gólf flísalögð.
2019 - Spanhelluborð (77x50) endurnýjað.
2022 - Skipt um glugga í svefnherbergjum sem vísa í austur, eldhúsglugga, borðstofuglugga, glugga í andyri og glugga í geymslu í kjallara.
2023 - Gluggi í baðherbergi, minni stofugluggi, og svenherbegisgluggi til vesturs málaðir.
- Rafmagn í íbúð var endurnýjað af fyrri eiganda fyrir c.a. 5-10 árum.
- Ofnar og ofnalagnir voru endurnýjaðar af fyrri eiganda fyrir c.a. 5-10 árum.

- Húsið/sameign -
2007 - Sameign var máluð, skipt um teppi í stigagöngum og hurðar inn í íbúðir voru endurnýjaðar með vönduðum eldvarnarhurðum frá Agli Árnasyni.
2014 - Húsið sprunguviðgerðir og málað.
2019 -  Ný drenlögn við húsið og skólplagnir endurnýjaðar.
- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar í sameign og þvottahúsi á síðustu 5-10 árum.
 - Þvottahús tekið í gegn og sér tenglar fyrir þvottavélar og þurrkara sem tilheyra hverri íbúð settir upp ásamt skolvaski. 
- Rafmagnstöflur hafa verið endurnýjaðar í sameign (ein fyrir hvorn stigagang).
- Hjóla- og vagnageymslur málaðar fyrir nokkrum árum.
- Ljósleiðari tengdur í íbúð.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/01/202153.250.000 kr.59.000.000 kr.116.8 m2505.136 kr.
02/03/200721.570.000 kr.23.300.000 kr.116.8 m2199.486 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallgerðargata 11
3D Sýn
Opið hús:01. júlí kl 17:00-17:30
Hallgerðargata 11
105 Reykjavík
88.7 m2
Fjölbýlishús
312
957 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Stangarholt 5
Bílskúr
Opið hús:30. júní kl 16:30-17:00
Skoða eignina Stangarholt 5
Stangarholt 5
105 Reykjavík
104.3 m2
Fjölbýlishús
312
814 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Gunnarsbraut 43
Bílskúr
Skoða eignina Gunnarsbraut 43
Gunnarsbraut 43
105 Reykjavík
131.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
512
628 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Engjateigur 17
Skoða eignina Engjateigur 17
Engjateigur 17
105 Reykjavík
109.9 m2
Fjölbýlishús
412
773 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin