BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HELLUHRAUN 1, 810 Hveragerði. Fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið stendur í nýlegu hverfi Kambaland, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er timburhús, byggt árið 2022. Húsið skiptist í einbýli 133.8 m² og bílskúr 41.1 m² samtals 174.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og hol, þvottahús og bílskúr, geymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með fjórföldum fataskáp, innangengt er úr anddyri í þvottahús og þaðan í bílskúr.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út á steypta verönd til suðurs.
Eldhús, HTH L- laga innrétting og eyja,
Acrylsteinn á borðum.
Smeg spanhelluborð, Smeg ofn og ofn/örbylguofn í vinnuhæð ásamt innbyggðri Smeg uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Hol er framan við svefnherbergi, nýtt í dag sem heimaskrifstofa.
Hjónaherbergi er með opnum fataskápum.
Baðherbergi er inn af hjónaherbergi, upphengt salerni, vaskinnrétting, sturta, veggir sturtuhorna eru flísalagðir, gluggi.
Barnaherbergin eru tvö, bæði þeirra eru með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi, upphengt salerni, vaskinnrétting, sturta, veggir sturtuhorna eru flísalagðir, gluggi. Útgengt er út á steypta verönd til vesturs frá baðherbergi.
Þvottahús, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vaskur í innréttingu, gluggi.
Bílskúr, rafræn opnun (tvær fjarstýringar fylgja), gluggar. Rafmagnstafla og hitaveitugrind eru í bílskúr, gönguhurð er bílskúr við aðaldyr hússins.
Húsið er hitað upp með
gólfhita, Danfoss stýringar á veggjum.
Loftræstikerfi er í eigninni.
Innbyggt Bose hljóðkerfi er í alrými
Gólfefni: Flæðandi Quick-Step harðparket frá Harðviðarval er í alrými, svefnherbergjum og holi. Flísar á anddyri, baðherbergjum og þvottahúsum.
Húsið er timburhús á einni hæð járn á þaki, Húsið er klætt að utan með liggjandi járnklæðningu. Steypt bílaplan og aðkoma að húsi, snjóbræðsla er í bílaplani og í aðkomu að húsi.
Steypt verönd er við húsið til suðurs og til vesturs. Lóð er gróin 735,0 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 251-2859.Stærð: Einbýli 133,8 m². Bílskúr 41,1 m² Samtals 174,9 m².
Brunabótamat: 97.600.000 kr.
Fasteignamat: 98.200.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2025: 101.250.000 kr
Byggingarár: 2022
Byggingarefni: TImbur.