Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð með gluggum á þrjá vegu og yfirbyggðum vestur svölum í húsi nr. 49 við Skipholt í Reykjavík.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 94 fm. og þar af er geymsla 4,6 fm.
Nánari lýsing:Anddyri/hol mjög rúmgott þar sem eru einstaklega gott skápapláss og flísar á gólfi.
Stofa er opin og björt með gluggum til norðurs og vesturs, parket á gólfi. Útgengt er út rúmgóðar yfirbyggðar vestur svalir úr stofunni.
Eldhús er með eldri innréttingu, ágætri vinnuaðstöðu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkróki og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi með nýlegum fataskáp og dúkur á gólfi.
Herbergi II með fataskáp og dúkur á gólfi.
Herbergi III með dúk á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi og í kringum baðkar.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og geymsla íbúðar.
Að sögn seljanda var skipt um járn á þaki, hús múrviðgert og málað, svalahandri lagfærð/endurnýjuð og skipt um glugga og gler á austurhlið hússins árið 2012. Sama ár var skipt um alla glugga á austur- og suðurhlið hússins og árið 2021 var frárennsli fóðrað.
Góð og vel skipulögð íbúð miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is