Fasteignaleitin
Skráð 23. maí 2025
Deila eign
Deila

Kleppsvegur 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
768.132 kr./m2
Fasteignamat
63.350.000 kr.
Brunabótamat
40.470.000 kr.
Mynd af Hrafnkell Pálmarsson
Hrafnkell Pálmarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1959
Þvottahús
Geymsla 6.5m2
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2016055
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
8
Hæðir í húsi
8
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað - verða skoðaðar í ár
Gluggar / Gler
Endurnýjað 2005-2007
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1
Upphitun
Geislahitun/sameiginleg
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Yfirstandandi framkvæmdir: Á aðalfundi 2025 upplýsti stjórn um að útskipti á lömum á gluggum væri að mestu lokið. Enn á eftir að innheimta lokagreiðslu vegna
þessa verks. Sjá nánar aðalfundargerð 08.05.2025

Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags: 
Á aðalfundi 2025 upplýsti stjórn að viðgerð á svalagólfi sem átti að fara fram árið 2024 verði framkvæmd sumarið 2025. Fyrir liggur að fara þarf í ástandsskoðun á frárennslislögnum, kanna sig í gangstétt umhverfis húsið og sinna viðhaldi á austurhlið tengibyggngar því þar séu komnar fram rakaskemmdir. Laga þarf stéttina fyrir framan inngang í kjallaraíbúð og athuga verð á dyrasímakerfi sem og nýju lyklakerfi. Einnig mun áfram vera unnið að því að þétta ytra byrði hússins eftir því sem sprungur koma í ljós. Einnig verður kannað með að setja upp myndavélar í anddyri. Sjá nánar aðalfundargerð 08.05.2025
Kvöð / kvaðir
FYRIRVARI UM MANNVIRKI Á LÓÐINNI, SJÁ B-10105
Falleg, björt og vel skipulögð útsýnisíbúð á 8. hæð (efstu) í góðu lyftuhúsi við Kleppsveg í Reykjavík. Góð staðsetning nærri miðborginni í grónu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun og þjónustu. 

** Einstakt útsýni 
** 2 rúmgóð svefnherbergi
** Gott viðhald á húsi


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 91m2, þar af geymsla 6,5m2.

Eignin skiptist í anddyri/hol, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.

Nánari lýsing:
Anddyri/hol er með flísum og parketi á gólfi.
Eldhús rúmgott og bjart með góðum borðkrók. Falleg viðarinnrétting með flísum á milli skápa og frábært útsýni út á sundin, að Esjunni og víðar.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting, skápar, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi I, mjög rúmgott með fataskáp og frábæru útsýni út á Sundin, að Esjunni, Akranesi og víðar. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og góðu útsýni yfir Reykjavík. Parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð og björt með útgengi á suðursvalir og parketi á gófi.  Einstaklega fallegt útsýni að Bláfjöllum, yfir borgina til suðurs og yfir miðborgina.
Á stigapalli fyrir framan íbúðina er lítil geymlsa/fataherbergi, sem tilheyrir íbúðinni.

Í sameign hússins eru:
Sérgeymsla, 6,5 fermetrar að stærð og er hún með glugga og hillum.
Tvö sameiginleg þvotta- og þurrkherbergi, með gluggum og lökkuðu gólfi. 
Tvær sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur með gluggum og útgengi á baklóð hússins.
Sameiginlegt fundarherbergi.

Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.  Forstofa við andyrri á 1. hæð er flísalögð og stigi er nýlega teppalagður. Dyrabjöllukerfi hússins hefur allt verið endurnýjað.
Húsinu hefur verið haldið vel við og lítur mjög vel út.  Skipt var um alla glugga í húsinu fyrir nokkrum árum, allt gler og svalahurðir. 

Lóðin er 3.639 fermetrar að stærð, fullfrágengin með fjölda malbikaðra bílastæða og góðri aðkomu fyrir framan hús. Baklóðin er með stórri tyrfðri flöt.  Lóðin er sameiginleg með húsunum nr. 116-118 við Laugarnesveg og húsunum nr. 2-6 við Kleppsveg. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og grónum stað nærri miðborginni þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.

** Athugið að nokkrum myndum hefur verið breytt með aðstoð gervigreindar til þess að gefa kaupendum hugmyndir að nýtingu eignarinnar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/08/202353.900.000 kr.58.500.000 kr.91 m2642.857 kr.
22/11/201116.700.000 kr.21.000.000 kr.91 m2230.769 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1959
6.5 m2
Fasteignanúmer
2016055
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
09
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.620.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 2
Skoða eignina Kleppsvegur 2
Kleppsvegur 2
105 Reykjavík
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
715 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Flókagata 6
Skoða eignina Flókagata 6
Flókagata 6
105 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
312
871 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 49
Skoða eignina Skipholt 49
Skipholt 49
105 Reykjavík
94 m2
Fjölbýlishús
413
744 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Snorrabraut 35
Skoða eignina Snorrabraut 35
Snorrabraut 35
105 Reykjavík
110.2 m2
Fjölbýlishús
412
634 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin