Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna stílhreina og flotta íbúð á 3. hæð í góðu og nýlegu fjölbýlishúsi við Álalind 10 í Kópavogi með lyftu og stæði í lokuðum bílakjallara.
Íbúðin er 3ja herbergja með hærri lofthæð en venja er. Lokaðar, rúmgóðar (13 fm.) svalir með hita í gólfi eru út frá stofurýminu.
Alrýmið rúmar stofu, borðstofu og eldhús. Innréttingar eru hvítar og stílhreinar.
Í eldhúsi er mjög gott skápapláss. Á eyjunni er mjög gott vinnusvæði til eldamennsku og innstunga fyrir heimilistækin. Tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu. Ofn er í vinnuhæð.
Öll upptalin tæki fylgja með í sölunni.Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.is
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramNánari lýsing íbúðar.
Forstofa: komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, góðum þreföldum fataskáp. Hægt er að loka millihurð með gleri inn í forstofu.
Alrými: Stofa, borðstofa og eldhús:
Stofan og
borðstofan eru með parketi á gólfi og gluggum út á lokaðar svalir.
Svalirnar eru með hita í gólfi, flísalagðar
og klæddar með við.
Eldhús: Eldhúsið er með mjög góðri innréttingu með efri og neðri skápum. Innfelldur tvöfaldur ísskápur með frysti, uppþvottavél, helluborð og fallegur hvítur háfur. Ofn er í vinnuhæð. Stór gluggi er í enda rýmisins sem hleypir birtu inn í alrýmið og eldhúsið.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og glervegg beint á gólf, upphengt salerni, góð innrétting undir vask og spegill með innbyggðri lýsingu fyrir ofan vask. Skúffur undir aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergið er rúmgott, með góðum þreföldum fataskáp.
Svefnherbergi II: Herbergið er með tvöföldum fataskáp.
Geymsla: 11,3 fm geymsla í kjallara.
Bílastæði í bílageymslu: Sérmerkt stæði.
Sameiginleg hjólageymsla.
Allur frágangur og umgengni til fyrirmyndar. Snjóbræðsla er í allri gangstétt hringinn í kringum húsið. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Smáralind, Smáratorg og Lindir í göngufjarlægð. Stutt gönguleið er í leikskóla og grunnskóla. Mjög góð tenging á stofnæð.