Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: Snyrtilega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð að Vindási 2 í Reykjavík, innst í rólegum botnlanga í fjölskylduvænu hverfi. Útgengi úr svefnherbergi á skjólgóða og afgirt verönd sem snýr til suðurs.
Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni sérgeymsla í sameign sem og hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi og hjóla-/vagnageymslu.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 58,80 fermetrar.
Nánari lýsing:Eldhús: Eldri innrétting með ágætis skápaplássi og pláss fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými með eldhúsi.
Hjónaherbergi: Dúkur á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur og útgengi á verönd.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu, Innrétting við vask og efri skápar.
Annað:Sérgeymsla í sameign.
Sameiginlegt þvottahús og hjóla-/vagnageymsla.
Skipt var um inngangshurðir í öllum íbúðum árið 2023 – settar reykvarnarhurðir með hljóðeinangrun.
Samkvæmt seljanda og húsfélagi hefur ytra byrði hússins verið tekið töluvert í gegn á undanförnum árum, þar á meðal klæðning, gluggar, gler og þak eftir úttekt árið 2017.
Frábær staðsetning – stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Elliðaárdalurinn, Árbæjarlaug og íþróttasvæði Fylkis í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.