Lind fasteignasala og Hafþór Örn lgf kynna fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð við Langholtsveg 187, Reykjavík.
Björt lítið niðurgrafin eign á jarðhæð, fallegur og skjólgóður garður er kringum húsið.
Nánari upplýsingar veitir Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.is
Skv. FMR er íbúðin skráð samtals 81,9 fm.Inngangur er sér um sameign.Nánari lýsing á eign:Andyri með fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu, keramik helluborði og bakarofni. Gluggar á tvo vegu. Flísar á gólfi og gólfhiti.
Góður borðkrókur er í eldhúsinu.
Baðherbergi með baðkari og sturtuhaus. Nýlegur gluggi er á baðinu. Flísalagt.
Stofan er björt með glugga á 3 vegur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott, með teppi á gólfi sem er búið að leggja ofan á parket, en auðvelt að taka teppið af.
Svefnherbergi I er inn af anddyri, með parket á gólfi, var að áður að hluta til geymsla merkt 0002 á teikningu.
Svefnherbergi II er inn af stofu, Mögulegt að taka niður vegg og opna aftur og nýta þá sem tvískipta stofu. Parket á gólfi.
Sérgeymsla er undir stiga
Sameiginlegt
þvottahús þar sem er hitagrind. Sérhiti í íbúð.
Húsið er steinsteypt, kjallari, hæð og ris ásamt þakrými. Þak er tvíhalla.
Skv. seljanda var húsið múrviðgert og málað árið 2021, þak og þakrennur yfirfarnar árið 2025.
Búið er að skipta um ofna innan íbúðar og rafmagn endurnýjað að hluta.
Skemmtileg eign á vinsælum stað sunnarlega á Langholtsvegi, stutt í alla þjónustu.Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn .
Nánari upplýsingar veitir Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.