LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsilega og fjölskylduvæna 4ra herbergja 110,3m2 íbúð á fyrstu hæð í lyftuhúsi með útgengi út á suður verönd. Íbúðinni fylgir einkabílastæði í kjallara.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.
Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi- borðstofu og stofu sem eru í fallegu og opnu rými með útgengi út á suður verönd, þremur svefnherbergjum, fataherbergi, baðherbergi, þvottahúsi ásamt geymslu og hjóla- og vagnageymslu í sameign. Íbúðin er 99m2, geymslan 11,2m2 og stæði í bílakjallara.
-//- Aukin lofthæð
-//- Rúmgott hjónaherbergi með opnu fataherbergi
-//- Rúmgóður sólpallur til suðurs
-//- Harðparket gólfi í alrými og herbergjum
-//- Vandaðar innréttingar frá trésmiðju GKS ehf
-//- Bílastæði í bílakjallara
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft, harðparket á gólfi.
Eldhús: Er með góðu skápaplássi ásamt eyju með helluborði, hægt er að sitja við eyjuna. Uppþvottavél og ísskápur eru innbyggð og fylgja því með.
Stofa/borðstofa: Eru í opnu og björtu rými með útgengi út á suður verönd. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi, skúffur eru undir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðu opnu fataherbergi, harðparket á gólfi.
Herbergi: Er með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Herbergi: Er með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Baðherbergi: Er með skúffum undir vaski, speglaskápi með ljósi í, handklæðaofni, walk in sturtu ásamt upphengdu salerni, flísar á gólfi.
Geymsla, hjóla- og vagnageymsla: Eru í sameign.
Bílastæði: Er í upphituðum kjallara. Búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöðvar (hægt að fá stöð á leigu eða kaupa án tilkostnaðar við uppsetningu).
Hægt er að nýta svalahurð sem sérinngang, búið er að setja upp snjalllás sem hægt er að læsa utanfrá. Frá verönd er opinn sameiginlegur garður.
Leyfi er fyrir hundahald í stigaganginum. Þetta er falleg og góð eign í barnvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
// VILDARKORT LINDAR //
Allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd, Húsasmiðjan og Vodafone.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.