Fasteignaleitin
Skráð 9. júní 2026

Asparteigur 2

RaðhúsSuðurnes/Garður-250
98.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
666.330 kr./m2
Fasteignamat
57.800.000 kr.
Brunabótamat
53.850.000 kr.
Mynd af Hákon Ólafur Hákonarson
Hákon Ólafur Hákonarson
www.prodomo.isEignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2332911
Landnúmer
215565
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd með skjólveggjum
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 3ja herbergja 98.9fm endaraðhús við Asparteig 2 í Garði, Suðurnesjabæ. Um er að ræða nýlega eign byggð 2022  þar sem innkeyrslan er hellulögð, sólpallur beggja megin með skjólveggjum, geymsluskúr og hleðslustöð. 10fm geymsluloft er innan eignar. 

Nánari lýsing:
Forstofa hefur flísar á gólfi og fataskáp.
Eldhús hefur parket á gólfi fallega hvíta innréttingu ásamt eyju, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, helluborð og ofn í vinnuhæð.
Stofa er opin við eldhús og hefur parket á gólfi og hurð út á verönd með skjólveggjum.
Herbergin eru tvö, parket á gólfum, fataherbergi í öðru þeirra og skápur í hinu.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, fallega hvíta innréttingu við vask, sturtu, handklæðaofn og innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á baðherbergi.
Hiti er í öllum gólfum hússins, Danfoss stýritæki í gólfhita. 
Lóð er frágengin, bílaplan hellulagt, verönd bæði að aftan og framan með skjólveggjum og graslagt svæði.


Parket og flísar eru frá Birgisson, innihurðar eru einnig frá Birgisson, blöndunartæki eru frá Tengi og heimilistæki frá Samsung.

Mjög snyrtileg eign sem lítur út sem ný á góðum stað í Suðurnesjabæ. Eignin getur verið laus fljótlega.

Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.




 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/06/202232.050.000 kr.49.900.000 kr.98.9 m2504.550 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 28
Opið hús:15. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skipholt 28
Skipholt 28
105 Reykjavík
70.7 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisholt 14
Skoða eignina Skyggnisholt 14
Skyggnisholt 14
190 Vogar
106.6 m2
Fjölbýlishús
413
637 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 6
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
312
826 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjustétt 4
Skoða eignina Kirkjustétt 4
Kirkjustétt 4
113 Reykjavík
69.5 m2
Fjölbýlishús
211
862 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin