Fasteignaleitin
Skráð 15. okt. 2025
Deila eign
Deila

Hraunbær 102C

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
103.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
625.241 kr./m2
Fasteignamat
60.700.000 kr.
Brunabótamat
53.000.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2044908
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta (sameign)
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (sunnan megin)
Þak
Endurnýjað að hluta (þakjárn, pappi, flasningar)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir með svalalokun
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar skemmtilega og rúmgóða 4ra herbergja íbúð með svalalokun á svölum í vel viðhöldnu fjölbýli með nægum bílastæðum miðsvæðis í Árbæjarhverfi. Um er að ræða eignin í Hraunbær 102C, nánar tiltekið eign merkt 03-01. Eignin er skráð alls 103,80 m2 að heildarstærð ásamt 4,60 m2 sérgeymslu í sameign. Íbúðin skiptist í forstofuhol/sjónvarpshol, stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi með skápum. Svalir snúa í suður og eru með opnanlegri svalalokun. Íbúðin er vel með farin og hefur baðherbergi til dæmis verið endunýjað á undanförnum árum. Auk þess hefur nánast allt ytra byrði hússins verið tekið í gegn á undanförnum árum og búið að klæða allar hliðar nema norðurhlið. Hér er því um að ræða rúmgóð íbúð í góðu fjölbýli á besta stað í Árbæ með tilliti til fjarlægðar frá allri helstu þjónustu. - 

*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Nánari skipting og lýsing eignarhluta:
Forstofuhol
er með vönduðum en upprunalegum fataskáp með hnotuspón og rennihurðum. Nýta mætti forstofuhol sem sjónvarpshol. Viðarparket á gólfi.
Eldhús er opið inn af forstofuholi en lokanlegt með rennihurð, sem fellur inn í veggklæðningu með hnotuspón. Innrétting er vel með farin upprunaleg og í "retró" stíl. Höldulausar framhliðar og líflegt litaval. Ofn í vinnuhæð og keramik helluborð. Uppþvottavél í sama stíl má fylgja. Korkur á gólfum og flísar milli efri og neðri skápa. Innst í eldhúsi er borðkrókur og hurð inn í þvottaherbergi.
Þvottaherbergi er rúmgott og rúmar bæði þvottavél og þurrkara ásamt skápum. Vaskur er á vegg.
Stofa er rúmgóð og björt og getur rúmað bæði setustofu og borðstofu. Útgengi er á svalir með svalalokun. Viðarparket á gólfi.
Hjónaherbergi er með vel með förnum en upprunalegum fataskáp sem er með rennihurðum og spónlagður með hnotuspón. Parker á gólfi.
Baðherbergi með "walk in" sturtu, vandaðri innréttingu með góðu skápaplássi, Flísalagt hátt og lágt með hvítum á vegg en gráum á gólfi.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp með hnotuáferð.
Svefnherbergi III er með parketi á gólfi og fataskáp með rennihurðum með hnotuspón.
Sérgeymsla í sameign með  hillum.

*** SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT OG SÖLURÁÐGJÖF ***

Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7a (202)
Opið hús:26. okt. kl 12:00-12:30
IMG_5338.JPG
Eirhöfði 7a (202)
110 Reykjavík
68.8 m2
Fjölbýlishús
211
981 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7d (118)
Eirhöfði 7d (118).jpg
Eirhöfði 7d (118)
110 Reykjavík
73.5 m2
Fjölbýlishús
211
910 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Rofabær 31
Skoða eignina Rofabær 31
Rofabær 31
110 Reykjavík
89.4 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
62.400.000 kr.
Skoða eignina Rofabær 23
Skoða eignina Rofabær 23
Rofabær 23
110 Reykjavík
73.3 m2
Fjölbýlishús
211
858 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin