Fasteignasalan TORG kynnir: Bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja íbúð á 5. hæð með glæsilegt útsýni til vesturs, norður og austurs. Tvennar svalir. Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali s.898-3326, dorothea@fstorg.is
Samkvæmt skrá FMR er íbúðin 104,2 fm auk sérgeymslu í sameign.
Sækja söluyfirlit hér
Nánari lýsing:Íbúðin er í dag með tveimur svefnherbergjum en auðvelt að breyta aftur í þrjú svefnherbergi.
Forstofa er flísalögð með fataskáp og áföstu borði.
Stofan og borðstofa eru samliggjandi með parketi á gólfi og útgengt er út vestursvalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi I er með fataskáp, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi. Auðvelt að breyta í tvö herbergi.
Eldhúsið er glugga og fallegu útsýni til norðurs. Viðarinnrétting, hvít uppþvottavél fylgir og hvítur ísskápur. Keramikhelluborð með ofni í neðri innréttingu. Áfast eldhúsborð. Flísar á gólfi sem flæða inn í þvottahús við hliðina.
Þvottahús með hvítri innréttingu, þvottavél fylgir, útgengi út á austursvalir.
Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu og speglaskáp. Sturtuklefi.
Í sameign í kjallara er
sérgeymsla íbúðar og sameiginlegt þvottahús. Á jarðhæð er hjóla- og vagnageymsla.
Gott viðhald hefur verið á fjölbýlinu samkvæmt seljendum. Endurnýjaðir gluggar á suður- og austurhlið ásamt svalarhandriðum, endurnýjuð lyfta, þakefni og rennur endurnýjað 2024.
Hér er um að ræða eign með einstöku útsýni með mikla mögulega. Stutt er í flesta þjónustu sem og í grunn-og leikskóla. Allar upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali s.898-3326, dorothea@fstorg.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. TORG fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um kr. 50.000.-
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.