Fasteignaleitin
Skráð 31. maí 2025
Deila eign
Deila

Skaftahlíð 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
109 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
778.899 kr./m2
Fasteignamat
79.650.000 kr.
Brunabótamat
50.300.000 kr.
Mynd af Helen Sigurðardóttir
Helen Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1946
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2013475
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegt / óvitað / engin þekkt vandamál
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt / Skólp frá húsi var endurnýjað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler / upprunalegir að litlum hluta / endurnýjað sbr. lýsing
Þak
Endurnýjað 1995 ca. málað 2013 ca.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Frontur á rafmagnstöflu í íbúð lokast ekki ( smálegt ), dyrasími er smá laskaður ( eldri ) hlustunartól virkar ekki en takki virkar til að opna hurðina niðri.
Hluti af lögnum er aðgengilegur úr skáp af svölum( ofnalögn fyrir ofninn í eldhúsi ), kalt rými, því er mikilvægt að ekki sé slökkt á ofninum því ekki má frysta í þeirri lögn nema sé fært inn fyrir í heitt rými.
Björt og hugguleg 5 herbergja hæð í vel viðhöldnu fjórbýlishúsi við Skaftahlíð 15, Reykjavík

* Glæsilegt útsýni
* 4 svefnherbergi og rúmgóð stofa
* Endurnýjað baðherbergi og eldhús að hluta


Endurnýjun sl. ár tiltelur ma. :
2023 var skólp frá húsi endurnýjað.
2015 ca. var húsið málað.
2008 voru gluggar í íbúð á suður, norður og austurhlið endurnýjaðir
1999 var dregið var nýtt rafmagn í íbúðina.
1995 ca. var endurnýjað þakjárn og þakrennur 

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. FÍ er 109,00 m2, eignin er að hluta undir súð svo nýtanlegir gólf-fermetrar eru fleiri. Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 84.850.000 kr.

Samkv. teikningu var breyting gerð á íbúðinni 1981 þar sem settur var kvistur í eldhús, gerðar svalir og baðherbergi fært.

Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, eldhús, svalir, baðherbergi, 4 svefnherbergi, geymsluskápur og geymsluloft.
Stigapallur á efstu hæð nýtist vel fyrir fatahengi.
Hol er með viðarparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með viðarparket á gólfi. Fallegt útsýni og stór gluggi.
Eldhús er flísalagt með U-laga innréttingu. Tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn, helluborð og bjartur borðkrókur.
Útgengt út á svalir til suðurs.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, upphengdu salerni, rúmgóðri innréttingu með handlaug og skápum. Tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og þar er geymsluskápur.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi, nýtt sem sjónvarpshol í dag.
Geymsluloft er yfir íbúðinni, aðgengilegt úr holi.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús. 

Stór sameiginlegur og vel gróinn garður. 

Stutt í skóla og alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina. Klambratún í allra næsta nágrenni, þar er stórt útivistarsvæði ásamt Kjarvalsstöðum og kaffihúsi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgartún 24 - íbúð 207
Bílastæði
Borgartún 24 - íbúð 207
105 Reykjavík
80.2 m2
Fjölbýlishús
312
1071 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Sundlaugavegur 14
Bílskúr
Sundlaugavegur 14
105 Reykjavík
123.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
713 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - Íbúð 401
Opið hús:09. júní kl 16:00-17:00
Heklureitur - Íbúð 401
105 Reykjavík
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Gunnarsbraut 43
Bílskúr
Skoða eignina Gunnarsbraut 43
Gunnarsbraut 43
105 Reykjavík
131.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
512
628 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin