RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Grýtubakka 32, íbúð 0101 - Fnr. 204-7778 Grýtubakki 2 er falleg tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með palli sem snýr í suður. Birt stærð eignarinnar er 73,2 fm og þar af er geymsla skráð 8 fm.
FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Malbikuð bílastæði og eru rafhleðslustöðvar á bílaplaninu.
Forstofa: Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á pall sem snýr í suður.
Eldhús: Parket á gólfi. Nýleg hvít eldhúsinnrétting. Spansuðuhelluborð með viftu yfir. Innbyggður kæli/frystiskápur í innréttingu sem og innbyggð uppþvottavél sem fylgir.
Herbergi: Parket á gólfi. Fataskápur er í herbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum við votrými. Hvít innrétting með handlaug. Upphengt salerni.
Pallur: Timburverönd með skjólveggjum. Hægt að stækka pall og taka gróður sem þekur hluta baklóðar í dag. Pallurinn snýr í suður og er sælureitur á sólríkum dögum.
Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er skráð 8,0 fm.
Lóð: Ræktuð frágengin lóð við húsið.
Grýtubakki 32 er einstaklega falleg íbúð sem búið er að endunýja að innan á undanförnum árum s.s. baðherbergi,eldhús og nýjar innihurðir og parket. Íbúð er hægt er að flytja inn í án þess að fara í nokkrar framkvæmdir. Tilvalin fyrstu kaup eða fyrir þá sem vilja minnka við sig. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.