RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynnir fallegt einbýlishús við Suðurgötu 35 í Hafnarfirði.
Um er að ræða einstaklega snyrtilegt og vel endurnýjað einbýlishús á eftirsóttum stað í miðbæ Hafnarfjarðar. Frá árinu 2017 hefur eignin verið endurnýjuð nánast frá grunni, bæði að innan og utan. Húsið skiptist í tvö góð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús sem er opið inn í bjarta stofu og borðstofu, auk útgengis á hellulagða verönd. Nýlegt harðparket er á öllum rýmum nema votrýmum og gólfhiti er í öllum gólfum.
- Tækifæri til að eignast sérbýli á miðsvæðis í Hafnarfirði.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
- Stutt í grunn- og leikskóla, sundlaug og miðbæ HafnarfjarðarAllar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir í síma 820-0490, gudrun@remax.isHér er hlekkurinn á 3D, verið velkomin í heimsókn. Nánari lýsingForstofa: Komið er inn í forstofu með harðparketi á gólfi.
Stofa / Borðstofa: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi. Rýmið er opið og tengist eldhúsi á fallegan hátt.
Eldhús: Nýleg og smekkleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél. Ísskápur fylgir með eigninni. Keramikhelluborð, góður gluggi og útgengi á hellulagða verönd með skjólveggjum og hitalögn.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og góðum „walk-in“ fataskáp.
Svefnherbergi: Gott herbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og sturtusvæði. Falleg nýleg innrétting með innfeldum vaski, upphengdu salerni og rúmgóðri „walk-in“ sturtu. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús: Er inn af baðherbergi. Flísalagt gólf, rennihurð, góðar hillur og gluggi. Þvottavél getur fylgt með við sölu.
Frekari upplýsingar um eignina:Um er að ræða fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á vinsælum stað í Hafnarfirði. Frá árinu 2017 hefur húsið verið endurnýjað í heild sinni, meðal annars voru þak og þakjárn endurnýjuð, allar rafmagns- og vatnslagnir endurgerðar, nýjar innréttingar settar upp, hurðir og gólfefni endurnýjuð auk þess sem einangrun og fjölmargir aðrir þættir hússins voru endurbættir.- Einstaklega falleg eign sem vert er að skoða.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir í síma 820-0490, gudrun@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.