Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Valshlíð 5 - íbúð 215

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
112.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
111.900.000 kr.
Fermetraverð
998.216 kr./m2
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532610
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 5 – Íbúð 215.

S8-Sameign í boði – fjármagnaðu aðeins 75% af kaupverði:

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending er hafin.

S8-Sameign í boði:

  • Þú fjármagnar 75% — 83.925.000 kr. (lágmark 75%)
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (8.392.500 kr.)
  • Nýtir þú kauprétt innan 3 ára færðu leigugreiðslur endurgreiddar
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Á sölusíðu eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Gegnumlýst 4ja herbergja íbúð á 2. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns (norður/suður), 112,1 fm (þar af 8,6 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suðursvalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og sérstakt þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Hlíð 1.

Í anddyri er góður fataskápur. Rúmgott alrými með eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir. Eldhúsinnrétting með hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr kopar/gulllituðu stáli. Hjónaherbergi með fataskápum. Tvö svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr svörtu möttu stáli. Þvottaherbergi með ljósri innréttingu, leirljósum steinflísum og vaski. Sérgeymsla í kjallara (0066). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snorrabraut 73
Skoða eignina Snorrabraut 73
Snorrabraut 73
105 Reykjavík
85.5 m2
Fjölbýlishús
412
818 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7
3D Sýn
Skoða eignina Reykjastræti 7
Reykjastræti 7
101 Reykjavík
71.5 m2
Fjölbýlishús
211
1439 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12C
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12C
Hafnarbraut 12C
200 Kópavogur
87.4 m2
Fjölbýlishús
211
891 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 50
Skoða eignina Eyravegur 50
Eyravegur 50
800 Selfoss
101.1 m2
Fjölbýlishús
312
528 þ.kr./m2
53.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin