SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS – GLÆSILEGT RESORT*
Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm., Þar er frábær aðstaða til að njóta lífsins, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er nýr og glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum líkamsræktaraðstöðu og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni á frábæru verði. Dásamleg fjölskylduparadís.
ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum. Nýr áfangi var að koma í sölu og því kjörið tækifæri til að tryggja sér gott hús.
Hjá Spánareignum er hægt að skrá sig á forsölulista og geta þá valið gott hús þegar nýir áfangar koma í sölu, áður en þau fara í almenna sölu.Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 0034 615112869
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354 777 4277.
Nánari lýsing:Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi og auk þess gestasnyrting. Stór verönd, sér garður með einkasundlaug. Þaksvalir með flottri aðstöðu. Stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð. Bílastæði.
Óinnréttaður kjallari og er hægt að láta innrétta hann á ýmsa vegu, td. með svefnherbergi, baðherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými, gegn aukagjaldi.
Jarðhæð: Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu opnu rými og útgengi út á veröndina sem er með góðu aðgengi að einkagarði með sundlaug. Gestasnyrting. Gott svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð: Stór hjónasvíta með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi út á góðar svalir og annað svefnherbergi með baðherbergi.
Kjallari: Rúmgott opið rými sem hægt er að láta innrétta að eigin vali.
Sérlega metnaðarfull hönnun þar sem tekið er tillit til umhverfis og náttúru.
Vandaðar og fallegar innréttingar. Hiti í gólfum í baðherbergjum.
Helluborð, bökunarofn, örbylgjuofn og vifta í eldhúsi fylgir.
Einnig lýsing, bæði inni og úti.
Hægt er að fá húsin fullbúið húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.
Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.
Verð:
3 svefnh. + 3 baðh.+ gestasnyrting, kjallari og þakverönd, verð frá 555.000 Evrur eða 80.400.000ISK + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin (miðað við 1 Evra = 145ISK)
Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, þakverönd, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,