Falleg þriggja herbergja íbúð á 4.hæð (efstu hæð) með útsýni. Íbúðin skiptist í stórt forstofuhol, stofu, baðherbergi, eldhús með borðkrók og tvö herbergi. Á 1.hæð er geymsla íbúðarinnar, hjólageymsla og sameiginlegt þvottaherbergi (einnig er tenging fyrir þvottavél á baðherbergi).
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 78,1 fm, þ.a. er birt stærð geymslu 5,9 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgott parketlagt hol með stórum fataskáp. Stór parketlögð stofa með svaladyrum út á suðursvalir með glæsilegu útsýni. Baðherbergi er með skáp, tengingu fyrir þvottavél, baðkari, gólfdúk og veggflísum á hluta veggja. Stórt dúklagt eldhús með borðkrók, hvít eldhúsinnrétting og Elotrolux eldavél. Dúklagt barnaherbergi. Dúklagt rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Skipt hefur verið um ofna. Sett var ný loftræsting fyrir baðherbergi. Settar voru nýjar hurðir inn í íbúðir. Skipt var um glugga á austurhlið hússins. Gaflar hússins hafa verið klæddir. Sett var nýtt járn á þak.
Snyrtileg íbúð á efstu hæð með útsýni yfir borgina.
Verið er að skipta um járn og papa á þaki. Kom fram á aðalfundi (sjá fundargerðir og ástandsskoðun) að framkvæmdum á svölum hefur seinkað, samþykkt tilboð í þakframkvæmdir kr. 106.860.500,- sem íbúar greiða í fjórum greiðslum frá júlí - nóvember 2024. Einnig hefur verið rætt að gera við malbik og mála bílastæði. Verið er að laga glugga eftir gluggaskipti á austurhlið hússins (málaferli við fyrri verktaka). Samþykktar og væntanlegar framkvæmdir 2025 í húsfélagi stigahússins er að mála sameign og að skipta um teppi á stigagangi. Staða í stóra húsfélaginu Þórufelli 2-20 er kr. 1.471.352,- og framkvæmdasjóður kr. 13.027.066,- ógreiddir reikningar kr. 11.108.213 og útistandandi tekjur kr. 825.396,-. Staða á húsfélagi stigagangsins Þórufelli 12 er kr. 1.117.328,- ( framangreindar upplýsingar eru skv. yfirlýsingum húsfélagana dags. 02.12.2024 og 03.12.2024. Íbúðin er seld m.v. að kaupendur yfirtaki réttindi og skyldur í húsfélögunum m.v. núverandi stöðu.
Kvöð / kvaðir
Eignaskiptayfirlýsing 411-A-012542/1997 Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu Lóðarleigusamningur 411-I-24050 9591FM. LEIGULÓÐ TIL 75 ÁRA FRÁ 01-01-1969. HEILDARLÓÐ FYRIR NR. 2-20 (JÖFN NR.). KVAÐIR UM OPIN BÍLAST.,HOLR.,VATNSL.,LEIKSV.,JARÐSTR. OG GÖTULÝSINGU. R.R. MÁ REISA LJÓSASTÓLPA OG TENGIKASSA OG LEGGJA AÐ JARÐSTRENGI. KVÖÐ UM EINKAAFNOTARÉTT ÍBÚÐA Á 1. HÆÐ AF HLUTA LÓÐAR
Falleg þriggja herbergja íbúð á 4.hæð (efstu hæð) með útsýni. Íbúðin skiptist í stórt forstofuhol, stofu, baðherbergi, eldhús með borðkrók og tvö herbergi. Á 1.hæð er geymsla íbúðarinnar, hjólageymsla og sameiginlegt þvottaherbergi (einnig er tenging fyrir þvottavél á baðherbergi).
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 78,1 fm, þ.a. er birt stærð geymslu 5,9 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgott parketlagt hol með stórum fataskáp. Stór parketlögð stofa með svaladyrum út á suðursvalir með glæsilegu útsýni. Baðherbergi er með skáp, tengingu fyrir þvottavél, baðkari, gólfdúk og veggflísum á hluta veggja. Stórt dúklagt eldhús með borðkrók, hvít eldhúsinnrétting og Elotrolux eldavél. Dúklagt barnaherbergi. Dúklagt rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Skipt hefur verið um ofna. Sett var ný loftræsting fyrir baðherbergi. Settar voru nýjar hurðir inn í íbúðir. Skipt var um glugga á austurhlið hússins. Gaflar hússins hafa verið klæddir. Sett var nýtt járn á þak.
Snyrtileg íbúð á efstu hæð með útsýni yfir borgina.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.