Fallegt og mjög vel staðsett parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Íbúðin skiptist í forstofu, stigahol, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottaherbergi , gestasnyrtingu, stofur, opið eldhús og innbyggðan bílskúr (innréttað aukaherbergi í bílskúr).
Nánari lýsing:
Á neðri hæð er gengið er inn í flísalagða forstofu og þaðan inn í parketlagt hol. Frá holi er gengið inn þvottaherbergi sem er flísalagt með glugga og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Á neðri hæð eru tvö parketlögð svefnherbergi, annað með góðum skápum. Þar er einnig baðherbergi með gólfflísum, glugga, hornbaðkari, sturtu og baðskáp við vask. Úr holi liggja svaladyr út í garð. Innangengt er í bílskúr frá þvottaherbergi. Bílskúr er skipt í tvennt og er innri hluti hans aukaherbergi með glugga. Hitagrind ásamt inntökum og rafmagnstafla er í fremri hluta bílskúrs.
Á efri hæð er stór parketlögð stofa með miklu útsýni og svaladyrum út á stórar svalir. Opið parketlagt eldhús með góðri eldhúsinnréttingu, tengingu fyrir uppþvottavél, Miele bakaraofni, Miele gashelluborði með tengingu í gaskút sem er staðsettur í kassa úti, norðan megin við hús. Gestasnyrting með glugga, vegghengdu salerni, parketi og veggflísum. Á efri hæð er einnig parketlagt svefnherbergi. Húsið lítur vel út, var viðgert og málað 2021. Skipt var um ofna 2018. Lóðin er falleg og skjólgóð með litlu garðhúsi norðan megin. Tvö bílastæði með hitalögn eru í innkeyrslu.
Gullfalleg eign innst í götu með fallegu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla og verslana- og þjónustukjarnann Spöngina. Nágrennið býður upp á mikla möguleika til útivistar, góða göngu- og hjólastíga og stutt er í Gufunes, Hallsteinsgarð og náttúruperluna Geldinganes.
Gömul rakaskemmd efst við loft í horni í bílskúr (aukaherbergi). Ath. bólur á vegg baðherbergis. Þarf að mála þak að hluta (sólbruni á húðun þakjárns).
Kvöð / kvaðir
Lóðarleigusamningur 411-A-016437/1997 LÓÐIN ER SAMEIGINLEG FYRIR VÆTTABORGIR 93 OG 95
Fallegt og mjög vel staðsett parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Íbúðin skiptist í forstofu, stigahol, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottaherbergi , gestasnyrtingu, stofur, opið eldhús og innbyggðan bílskúr (innréttað aukaherbergi í bílskúr).
Nánari lýsing:
Á neðri hæð er gengið er inn í flísalagða forstofu og þaðan inn í parketlagt hol. Frá holi er gengið inn þvottaherbergi sem er flísalagt með glugga og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Á neðri hæð eru tvö parketlögð svefnherbergi, annað með góðum skápum. Þar er einnig baðherbergi með gólfflísum, glugga, hornbaðkari, sturtu og baðskáp við vask. Úr holi liggja svaladyr út í garð. Innangengt er í bílskúr frá þvottaherbergi. Bílskúr er skipt í tvennt og er innri hluti hans aukaherbergi með glugga. Hitagrind ásamt inntökum og rafmagnstafla er í fremri hluta bílskúrs.
Á efri hæð er stór parketlögð stofa með miklu útsýni og svaladyrum út á stórar svalir. Opið parketlagt eldhús með góðri eldhúsinnréttingu, tengingu fyrir uppþvottavél, Miele bakaraofni, Miele gashelluborði með tengingu í gaskút sem er staðsettur í kassa úti, norðan megin við hús. Gestasnyrting með glugga, vegghengdu salerni, parketi og veggflísum. Á efri hæð er einnig parketlagt svefnherbergi. Húsið lítur vel út, var viðgert og málað 2021. Skipt var um ofna 2018. Lóðin er falleg og skjólgóð með litlu garðhúsi norðan megin. Tvö bílastæði með hitalögn eru í innkeyrslu.
Gullfalleg eign innst í götu með fallegu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla og verslana- og þjónustukjarnann Spöngina. Nágrennið býður upp á mikla möguleika til útivistar, góða göngu- og hjólastíga og stutt er í Gufunes, Hallsteinsgarð og náttúruperluna Geldinganes.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.