BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LYNGHEIÐI 2, 810 Hveragerði. Sex herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr og skála/vinnustofu.
Húsið stendur í grónu hverfi, stutt í alla almenna þjónustu, gönguleiðir og Hamarinn. Smellið hér fyrir staðsetningu.Einbýlishús byggt árið 1984, 135.9 m², bílskúr byggður 1988, 103.9 m² og garðskáli byggður 1990, 9.6 m², samtals 249.4 m² samkvæmt skráningu HMS.
Einbýlishús: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, fimm herbergi, baðherbergi og gangur.
Bílskúr: tvöföld bílgeymsla, geymsla, salerni.
Skáli/vinnustofa.
Garðskáli. Nánari lýsing;
Einbýlishús :Anddyri með fataskápum yfir heilan vegg, rafmagnstafla, flísar á gólfi.
Gangur liggur innan við anddyri að öllum öðrum rýmum hússins, parket á gólfi.
Eldhús, U-laga innrétting, Bosch helluborð og háfur, Whirlpool ofn í vinnuhæð, tækjaskápur, gert er ráð fyrir tveimur ísskápum í innréttingu, Bosch uppþvottavél getur mögulega fylgt, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa saman í opnu rými, parket á gólfi.
Herbergin eru fimm.Hjónaherbergi er með fataskápum yfir heilan vegg, parket á gólfi.
Fjögur herbergi, eitt þeirra er í dag notað sem geymsla, innrétting er í herbergi sem er notað sem geymsla, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting, sturta, handklæðaofnar og gluggi.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar.
Upptekin loft eru allstaðar í húsinu. Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr, geymsla er aftan við annan hluta, handlaug og inntök. Málað gólf, gönguhurð er á bílskúr aftan við garðskála.
Geymsla með hillum, rafræn opnun er á báðum bílskúrshurðum. Salerni og handlaug, korkur á gólfi.
Rolec hleðslustöð á bílskúr fylgir.
Í aftari hluta bílskúrs er
skáli/vinnustofa byggð árið 2008, upptekið loft og loftgluggar, flísar á gólfi, innangengt er á milli bílskúrs og skála/vinnustofu,
útgengt er þaðan út í bakgarð, ýmsir möguleikar á notkun.
Garðskáli er áfastur bílskúr, hellur á gólfi.
Lyngheiði 2 er timburhús á einni hæð. Hellulagt er að inngangi hússins og fyrir framan húsið að bílskúr og bílastæði. Hellulögð verönd er framan við húsið til suðurs.
Hellulagt bílastæði fyrir tvær bifreiðar er fyrir framan bílskúr. Lóðin er fullfrágengin, Garðskáli, fánastöng, hellulagt er við inngang í skála/vinnustofu (snjóbræðslulögn er undir hellulögn), baklóð er afgirt.
Lóðin er 890.0 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 221-0722.Stærð: 01.0101 Íbúð 135.9 m². 02.0101 Bílskúr 103.9 m². 03.0101 Garðskáli 9.6 m². Samtals 249.4 m²
Brunabótamat: 107.420.000 kr.
Fasteignamat: 103.300.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 114.400.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1984. Bílskúr 1988. Garðskáli 1990.
Byggingarefni: Timbur.