Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2025
Deila eign
Deila

Fagrihvammur 5

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
193.9 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
644.146 kr./m2
Fasteignamat
100.700.000 kr.
Brunabótamat
87.950.000 kr.
Mynd af Sólveig Regína Biard
Sólveig Regína Biard
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2074743
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Sjá lýsingu eignar
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu eignar
Þak
Ekki vitað
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Smá útbungun á vegg í borðstofu eftir að gleymdist að lofta út við flotun gólfs. Þó ekki um raka að ræða. Hefur lekið tvisvar sinnum meðfram stromp í miklum hvassviðrum. Búið að láta fagmann skoða en ekkert athugavert komið í ljós.
Sólveig Regína Biard lgf. og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega fjögurra-fimm herbergja íbúð á frábærum stað í Hvömmunum. Um er að ræða sérhæð í tvíbýli á þessum vinsæla útsýnisstað í Hafnarfirði.  Eignin hefur fengið miklar endurbætur seinustu ár. Stutt í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu og samgöngur.

Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 193,9 fm. 
Nánari upplýsingar hjá Sólveigu í síma 869-4879 eða á solveig@trausti.is  


Nánar um eignina:
Anddyri með góðum skáp. Flísar á gólfi.
Rúmgott eldhús með miklu skápaplássi. Svört innrétting með granít borðplötu. Flísar milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð með 6 hellum. Vifta klædd með kopargleri frá Glerborg. Ofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni. Gott rými fyrir borðkrók við enda eldhúss. Útgengt er á svalir og þaðan út á sólpall úr eldhúsi. Parket á gólfi.
Stór og rúmgóð stofa og borðstofa sem mynda eitt alrými. Hátt er til lofts með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Arinn sem aðgreinir stofu frá borðstofu. Útgengt á svalir úr stofu. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum skáp. Parket á gólfi.
Fataherbergi með parketi á gólfi.
Barnaherbergi 1, parketlagt.
Barnaherbergi 2, parketlagt.
Rúmgott sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Stórt baðherbergi með glugga. Snyrtileg innrétting með handlaug. Stór og góður spegill með innfelldri lýsingu. Stór fataskápur sem nær nánast til lofts. Upphengt salerni. Walk in sturta og frístandandi baðkar. Handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf. Parketflísar inn í sturtu og fyrir aftan baðkar. Útgengt er á svalir úr baðherbergi og þaðan niður á sólpall.
Geymsluloft er yfir hjónaherbergi og baðherbergi.
Sérþvottahús innan eignar með skolvask.
Bílskúr með epoxy húðuðu gólfi. Rafmagn. Heitt og kalt vatn. Nýjar lagnir í skúr.
Stór sólpallur með heitum og köldum pott sem eru fjarstýrðir með snjallforriti. Á pallinum er einnig snjallýsing og tenglar.

Hiti er í öllum gólfum eignar nema barnaherbergjum.
Hvíttaður panill í loftum alrýmis og eldhúss.
Öll ljós eignar með dimmerum.


Viðhald sem núverandi eigendur hafa farið í undanfarin 7 ár:
Á síðustu árum hafa verið gerðar umfangsmiklar og vandaðar endurbætur bæði utan- og innanhúss.
Utanhúss:
-Húsið hefur verið klætt að hluta, þ.e. á tveimur hliðum, með nútímalegu og viðhaldslitlu efni.
-Þakkantur og rennur voru endurnýjaðar að hluta til.
-Skipt var um glugga á einni hlið hússins.
-Glugga á suðurhlið var breytt í svalahurð sem leiðir út á rúmgóðan sólpall.
-Nýr u.þ.b. 100 fm sólpallur hefur verið byggður með heitum potti og köldum potti, báðir fjarstýrðir í gegnum snjallforrit. Á pallinum er einnig snjalllýsing og tenglar.
Innanhúss:
-Rafmagn hefur verið endurnýjað að fullu, með nýjum tenglum og rofum um allt hús.
-Settur var gólfhiti í allt hús og nýtt gólfefni lagt.
-Allar innihurðir voru endurnýjaðar.
-Eldhús var endurnýjað með vönduðum innréttingum, granítborðplötum og tækjum í hágæðaflokki.
-Baðherbergi var tekið í gegn. Flísalagt í hólf og gólf, með nýjum lögnum, innbyggðum blöndunartækjum, frístandandi baðkari, innfelldri lýsingu í niður teknu lofti og vönduðum innréttingum.
-Nýtt fataherbergi hefur verið útbúið.
Bílskúr:
Gólf í bílskúr hefur verið húðað með epoxy. 

Um er að ræða glæsilega og bjarta sérhæð í þessu rólega og fallega hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu. Húsið stendur í botnlanga götu með mörgum sameiginlegum bílastæðum.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína BIard, löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu solveig@trausti.is 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/201639.650.000 kr.49.000.000 kr.193.9 m2252.707 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsgata (Aukaíbúð) 13
Bílskúr
Holtsgata (Aukaíbúð) 13
220 Hafnarfjörður
189.5 m2
Einbýlishús
735
707 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Sléttahraun 20
Bílskúr
Skoða eignina Sléttahraun 20
Sléttahraun 20
220 Hafnarfjörður
199.9 m2
Fjölbýlishús
514
600 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Miðvangur 137
Skoða eignina Miðvangur 137
Miðvangur 137
220 Hafnarfjörður
187.2 m2
Raðhús
614
721 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbakki 9
Bílastæði
Skoða eignina Norðurbakki 9
Norðurbakki 9
220 Hafnarfjörður
145 m2
Fjölbýlishús
43
776 þ.kr./m2
112.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin