Fasteignaleitin
Opið hús:05. júlí kl 13:00-13:45
Skráð 3. júlí 2025
Deila eign
Deila

Miðvangur 137

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
187.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
747.329 kr./m2
Fasteignamat
112.100.000 kr.
Brunabótamat
94.050.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
Byggt 1971
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2078147
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Þakplötur endurnýjaðar 2022 að sögn eiganda.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna fallega eign við Miðvang 137, 220 Hafnarfjörður með fastanúmer 2078147.

Um er að ræða rúmgott, vel skipulagt og fjölskylduvænt 187,2 fm raðhús á tveim hæðum á þessum vinsæla stað í norðurbæ Hafnarfjarðar.
Íbúðarrými er 150.1 fm og innbyggður bílskúr 37 fm, góð afgirt suður-verönd.
Eign sem bíður uppá mikla möguleika á frábærum stað þar sem að stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði og stofnbrautir.

Húsið skiptist í:
Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, aðal og gesta-baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og innbyggðan bílskúr.
Afgirt suður-verönd, fallegur og stór garður.

Nánari lýsing eignar:
Rúmgóð forstofa með fatahengi.
Gesta-snyrting er innaf forstofu.
Hol þaðan sem gengið er í önnur rými neðri hæðar.
Eldhús er rúmgott, snyrtileg eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum mjög gott skápapláss er í eldhúsi ný tæki.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými, útgengi á afgirta suður-verönd úr stofurými.
Bjart stigarými er úr holi uppá efri hæð og undir stiga er rými sem gæti nýst sem vinnuaðstaða.
Komið er uppá hol/gang og þaðan er gengið í rými efri hæðar.

Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi er með skápum og annað herbergi með skápum, hin tvö svefnherbergin eru skápalaus.
Baðherbergi er endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa og baðkari, snyrtileg innrétting með skúffum undir vaski, vegghengt salerni, handklæðaofn á vegg.
Innbyggður bílskúr með eign og er gott geymslupláss í honum, þvottaherbergisaðstaða er einnig þar til staðar.
Gólfefni: Flísar og parket er á gólfum eignarinnar.
Húsið nýmálað að utan og nýjar þakplötur svo hefur verið skipt út 6 ofnum að sögn eiganda.

Nánari upplýsingar veitir:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Miðvangur 53
Bílskúr
Skoða eignina Miðvangur 53
Miðvangur 53
220 Hafnarfjörður
220.6 m2
Raðhús
715
626 þ.kr./m2
138.000.000 kr.
Skoða eignina Holtsgata (Aukaíbúð) 13
Bílskúr
Holtsgata (Aukaíbúð) 13
220 Hafnarfjörður
189.5 m2
Einbýlishús
735
707 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 41a
Opið hús:09. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hverfisgata 41a
Hverfisgata 41a
220 Hafnarfjörður
183.4 m2
Parhús
433
708 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Staðarhvammur 11
Staðarhvammur 11
220 Hafnarfjörður
231 m2
Raðhús
614
588 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin