Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Þverholt 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
155.1 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.500.000 kr.
Fermetraverð
596.389 kr./m2
Brunabótamat
85.000.000 kr.
Byggt 1990
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20850121
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lggf. kynna frábærlega vel skipulagða 7 herb. íbúð á 3ju og efstu hæð miðsvæðis í Mosfellsbæ til sölu eða leigu. Við Þverholt 9, í nýlega uppgerðu húsi er þessi vel skipulagða og fjölskylduvæna eign laus til afhendingar. Eignin er skráð 155,1 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, íbúðin er þó töluvert stærri að gólfleti enda hluti efri hæðarinnar undir súð með góðri nýtingu.
Íbúðin skiptist í neðri hæð með 2 svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og tvískiptri stofu, efri hæð er með 3 svefnherbergjum og sjónvarpsstofu. Geymsla, 2,8 fm. er við inngang í íbúðina.
Nánari lýsing; Komið er inn í forstofu/hol með góðum fataskápum. 
Tvö svefnherbergi eru á gangi út frá forstofu, bæði með fataskápum.
Eldhúsið er rúmgott með hvítri innréttingu með miklu skápa- og bekkplássi, tengi fyrir uppþvottavél og góðan borðkrók- frábært útsýni til norðurs yfir Esjuna og Mosfellsbæinn.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsinu, það er ca 6 fm. og nýtist vel bæði sem þvottaaðstaða og geymsla/búr.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, hvítri innréttingu með handlaug og góðum speglaskáp.
Stofan er tvískipt og liggur meðfram suðurhlið íbúðarinnar, þar eru upptekin loft yfir hluta rýmisins með mikilli lofthæð með fallegri loftklæðningu . Gengið er út á suðursvalir frá stofunni en hún snýr upp í holtið með fallegu útsýni.
Á efri hæðinni eru 3 svefnherbergi; Rúmgott hjónaherbergi með opnum fataskáp og tvö barnaherbergi með léttum skápum (ekki fastir - en fylgja).
Fyrir framan herbergin er rúmgóð sjónvarpsstofa.
Á íbúðinni er fallegt, gegnheilt eikarparket.
Geymsla, 2,8 fm. með opnanlegum glugga og hillum er staðsett á stigapalli við inngang að íbúðinni.
Íbúðin er mikið til upprunaleg en vel um gengin. Sameiginleg vagna og hjólageymsla er á jarðhæð með aðgengi í skjóli undir skyggni til móts við innganginn.
Nýlega yfirstaðnar framkvæmdir á húsinu að utanverðu; Húsið málað, múrviðgert og skipt um gler að hluta og gluggar málaðir. Þá er stutt síðan þak var tekið í gegn og skipt um járn og pappa. 
Sameign er snyrtileg og vel hirt. Góða aðkoma er að húsinu með töluverðum fjölda bílastæða.
Allar fekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg - Þaksvalir (602)
Efsta hæð
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:30
Laugaborg.jpg
Laugaborg - Þaksvalir (602)
105 Reykjavík
140,7 m2
Fjölbýlishús
523
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158,3 m2
Raðhús
43
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152,8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 7
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbær 7
Hraunbær 7
110 Reykjavík
165,3 m2
Raðhús
614
822 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin