RE/MAX og Sigrún Matthea lgf., kynna í einkasölu: Björt og falleg útsýnisíbúð á 5.hæð við Boðaþing 6, Kópavogi, ætlað íbúum 55 ára og eldri, þriggja herbergja eign m/ stórum þaksvölum og stæði í bílageymslu, mjög vel viðhaldið fjölbýlishús. Eignin skiptist í forstofu, opið rými sem er eldhús borðstofa stofa og sólstofa, tvö svefnherbergi annað m/ sérbaðherbergi og fataherbergi, gestasalerni m/sturtu og þvottaherbergi innan íbúðar, sér geymsla í sameign og gott bílastæði í bílakjallara. **** Eign er afhent við kaupsamning ****
Eign sem vert er að skoða, nánari upplýsingar hafðu samband við Sigrúnu Matthea s: 695-3502 eða á netf: sms@remax.is
Viltu fá söluyfirlit sent strax þá smelltu hér
viltu skoða eignina í 3D (þrívíðu formi) þá smelltu hér það þarf ekki sérstakt forrit í tölvuna.
Falleg, björt og vel hönnuð útsýniseign, staðsett í rólegu og eftirsóttu hverfi rétt við Boðann sem er með mikla þjónustu við eldri borgara. Einnig er stutt í alla helstu þjónustu, golf, sund, og annað íþróttastarf, einnig eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni ma. Elliðavatn og Heiðmörk. Samkvæmt skrá HMS er eign skráð íbúð 152,3 m2 geymsla 10,6m2 samtals stærð 162,9m2
Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur gegnheil niðurlímd Hnota viðarparket á gólfi.
Hol: Bjart rými, myndavéladyrasími, gegnheil niðurlímd Hnota viðarparket á gólfi.
Eldhús / borðstofa / stofa / sólstofa: Góðar innréttingar, gott skápa og vinnupláss, eldhúseyja gott skápa og vinnupláss helluborð og háfur, rúmgóð og björt stofa / borðstofa / sólstofa, gegnheil niðurlímd Hnota viðarparket á gólfi en flísar á sólstofu þaðan er útgengt út á mjög stórar hellulagðar þaksvalir.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi m/ góðu fataherbergi gegnheil niðurlímd Hnota viðarparket á gólfi, úr svefnherbergi er innangengt í baðherbergi.
Baðherbergi: Innrétting með tveimur handlaugum, vegghengt salerni, handklæðaofn, walk- in sturta, baðkar, flísar á gólfi og veggjum, innangengt í þvottaherbergi.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi, góðir fataskápar gegnheil niðurlímd Hnota viðarparket á gólfi
Gestasalerni: Lítil innrétting m/ handlaug, vegghengt salerni, sturta, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi: Inn af baðherbergi í svefnherbergi I, veggskápur, skolvaskur, flísar á gólfi.
Sérgeymsla: Er í sameign..
Bílastæði: Mjög rúmgott bílastæði er í bílageymslu.
Falleg eign á mjög góðum stað í Boðaþingi rétt við þjónustu fyrir eldri borgara í Boðanum sem er handan við götuna. Stutt er í golf, sund, verslun og aðra þjónustu sem og afar fallegt umhverfi við Elliðavatn og gönguleiðir um Heiðmörk.
Eign sem vert er að skoða, afhending er við kaupsamning. Upplýsingar um eigina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502 eða á netfang sms@remax.is
Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502 Viltu panta verðmat á þína eign smelltu hér