Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - Til sölu er Hafnarstræti 18 Ísafirði - Falleg og rúmgóð fimm herbergja íbúð í miðbæ Ísafjarðar - Sérinngangur - íbúðin er á tveimur hæðum, á 1. hæð er inngangur og forstofa, baðherbergi, þrjú herbergi, stofa og borðstofa og eldhús. Í kjallara er stór setustofa, stór geymsla og þvottahús. Sér bílastæði.
Húsið er byggt árið 1906 en 2009-2012 var húsið endurnýjað að stóru leyti og voru þá innréttaðar fjórar nýjar íbúðir í húsinu.Nánari lýsing:Efri hæð:Aðalinngangur að aftanverðu, þar er sér
bílastæði og verönd/svalir.Flísalögð
forstofa, hiti í gólfi, fataskápur.
Gangur með parketi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, upphengt salerni, handklæðaofn, stór sturtuklefi með nuddstútum og gufu, skápur og innrétting.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Annað
svefnherbergi einnig með parketi, án fataskáps.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Stór og björt
opin stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Opið
eldhús með innréttingu frá TH, helluborð og veggofn, uppþvottavél.
Neðri hæð:Tréstigi á niður á
kjallarhæð.Stór setustofa, hægt að útbúa annað herbergi þar, parket á gólfi.
Stór
geymsla með hillum, sérútgangur þar.
Þvottahús með flísum á gólfi.
Í sameign í kjallara er sameiginlegur gangur/geymsla og kyndiklefi.