Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Smiðjugata 1 Ísafirði - Fallegt og vel staðsett einbýlishús á þremur hæðum með aukaíbúð. Á fyrstu hæð er forstofa, eldhús, borðstofa, stofa og sólstofa. Á annarri hæð eru þrjú svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi. Í kjallara er setustofa/herbergi, lítið herbergi, þvottahús og geymsla.
Séríbúð með einu svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi og stofu. Tveir geymsluskúrar í garði og gott bílastæði.
Nánari lýsing:
1. hæð
Á fyrstu hæð er komið inn í litla forstofu með flísum og hita í gólfi, innri forstofa með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús með ágætri innréttingu, helluborð, háfur og ofn, uppþvottavél fylgir.
Borðstofa með parketi á gólfi tengir eldhús og stofu.
Lítil gestasnyrting með flísum á gólfi og hita í gólfi
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi.
Sólstofa, parket á gólfi, útgengt úr sólstofu út á hellulagða verönd og út í garð.
Undir sólstofu er köld geymsla.
2.hæð:
Tréstigi á milli hæða, stigagangur með parketi. Við enda gangs er fataherbergi/geymsla, parket á gólfi.
Baðherbergi með parketi á gólfi, sturtuklefi, baðkar og innrétting .
Parket á hjónaherbergi og útgengt þaðan út á svalir sem eru ofan á sólstofu.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum, lítll skápur í öðru.
Kjallari:
Í kjallara er þvottahús og geymsla, hleri úr þvottahúsi út í garð.
Sjónvarpsherbergi/setustofa, (má einnig nýta sem svefnherbergi) með parketi á gólfi og panil á veggjum.
Lítið herbergi innaf setustofu.
Aukaíbúð:
Norðanmegin er 32m² nýleg séríbúð, uppgerð 2017.
Forstofa með flísum.
Baðherbergi með sturtu, lítil innrétting, flísar á gólfi og veggjum.
Ágætt svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu rými, harðparket á gólfi, hvít eldhúsinnrétting, ofn, helluborð og lítill ísskápur.
Afgirtur garður, tveir kaldir geymsluskúrar og gott bílastæði að norðanverðu.