Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

Litlabæjarvör 15

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
282.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
219.000.000 kr.
Fermetraverð
776.045 kr./m2
Brunabótamat
139.650.000 kr.
Byggt 1990
Svalir
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20815721
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, kynna einstaklega vel staðsett 282,2 fm. einbýlishús með tvöföldum bílskúr og aukaíbúð á sjávarlóð á Álftanesinu í Garðabæ.
Gengið er inn á efri hæðina þar sem eru forstofa, gestasnyrting, stofur og eldhús.  Á neðri hæð eru þrjú góð svefnherbergi og inn af "unglingaherbergi" er gluggalaust rými sem nýta mætti sem tölvu-  eða afþreyingarrými. Einnig er á hæðinni gott baðherbergi og stórt þvottahús.

Húsið, sem stendur á 812,6 fm eignarlóð, er að hluta sem skipsskrokkkur í lögun.  Í stofu er sem staðið sé í stafni, þar sem horft er út á hafið, yfir Faxaflóann og allt vestur á Jökul.


Einstaklega góð staðsetning við fáfarna botngötu, nálægð við sjóinn og útsýni.  Á nokkru árabili hefur ytra birgði húss fengið gott viðhald, þakefni verið endurnýjað og nýlokið er við yfirferð á þakkanti. Stór Suðvestur gluggi í borðstofu hefur verið endurnýjaður og gler eftir þörfum.  Senn kemur að endurnýjun bílskúrshurða.  Góðar svalir, pallur, pottur og garður til vesturs.  Framan við grjótgarðinn, sem hlífir lóðinni við ágangi sjávar, er sandfjara, sker og ævintýraheimur fyrir þá sem kunna að meta.

Komið er inn á efri hæð.  Góð forstofa með miklu skápaplássi og gestasnyrting.
Inn af forstofu er borðstofa og eldhús til vinstri en sjónvarpshol og stofa til hægri. Mikil birta og upptekin loft.
Eldhús með stórri innréttingu og tækjum sem geta fylgt.  Góður borðkrókur með glugga.  Inn af eldhúsi er búr.
Borðstofan er einkar björt og rúmar stórt borð.  Hornglugginn setur mikinn svip á rýmið og má nýta með ýmsum hætti. Úr borðstofu er gengið út á góðar svalir.
Sjónvarpsrýmið er rúmgott og gengið upp nokkur þrep í stofuna, þar sem er arinn og hreint ótrúlegt útsýni.

Veglegur stigi er milli hæða en niðri eru 3 góð svefnherbergi og inn af einu þeirra gluggalaust rými sem gefur mikla möguleika, sem fyrr segir. Aftur minnir lögun hjónaherbergis á skipslag hússins.  Skápar í öllum herbergjum.
Einnig er þar aðal baðherbergi hússins, sem er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, baðkari og opnanlegum glugga.  Niðri er líka stórt þvottahús með innréttingu.
Gengið út á pall, þar sem er pottur og sólríkur vestur garður.

Viðarparket og flísar eru á gólfum hússins.

Tvöfaldur 43,3 fm. bílskúr gefur eigninni aukið gildi. Gengið er niður með húsinu að sérinngangi 2ja herb. aukaíbúðar sem er um 40 fm. að stærð.  Myndir úr aukaíbúð koma síðar.

Vel staðsett hús í útjaðri höfuðborgarsvæðisins, gott skólasamfélag, sund- og íþróttamenning og ósnortin náttúra allt í kring.  Fágætt tækifæri við sjávarsíðuna.
Áhugasamir bóki skoðun - Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is
 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (63)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðivangur 6
3D Sýn
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Víðivangur 6
Víðivangur 6
220 Hafnarfjörður
302.5 m2
Einbýlishús
834
661 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Ögurás 14
Heitur pottur
Opið hús:09. ágúst kl 15:00-15:30
Skoða eignina Ögurás 14
Ögurás 14
210 Garðabær
140.8 m2
Raðhús
524
994 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Nönnustígur 13
Opið hús:11. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Nönnustígur 13
Nönnustígur 13
220 Hafnarfjörður
212.6 m2
Einbýlishús
725
799 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsbúð 39
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsbúð 39
Holtsbúð 39
210 Garðabær
180.2 m2
Einbýlishús
514
921 þ.kr./m2
165.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin