Fasteignaleitin
Skráð 10. nóv. 2026

Melgata 5

EinbýlishúsNorðurland/Grenivík-610
261.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
95.000.000 kr.
Fermetraverð
363.428 kr./m2
Fasteignamat
64.900.000 kr.
Brunabótamat
117.000.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1977
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Hleðslustöð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2160960
Landnúmer
153106
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar að mestu. Skv. upplýsingum þegar eigendur keyptu voru vatnslagnir á baðherbergi á efri hæð endurnýjaðar í framkvæmdunum.
Raflagnir
Búið er að endurnýja tengla og eitthvað af raflögnum á efri hæðinni og í íbúð á neðri hæð.
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggar eru upprunalegir en búið er að endurnýja hluta af gleri og opnanlegum fögum
Þak
Upprunalegt. Þakskyggni var endurnýjað árið 2002 skv. upplýsingum sem eigendur fengu þegar þau keyptu.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti er á efri hæðinni og rafmagnskynding á neðri hæðinni
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
* Sprunga er í veggflís á baðherbergi á efri hæðinni. * Eftir er að ganga frá kringum lagnir í baðherbergi á neðri hæðinni og spartla á nokkrum stöðum. * Steypuskemmdir á vesturhlið. * Þakniðurföll eru ótengd. * Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar.
Kvöð / kvaðir
Vinnuborð í bílskúr fylgir ekki með við sölu eignar. 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Melgata 5 - Mikið endurnýjað 6 herbergja einbýlishús með aukaíbúð mér sér inngangi og rúmgóðum bílskúr á Grenivík - stærð 261,4 m²
Húsið er skráð steypt og með byggingarár 1977


* Eignin var mikið endurnýjuð árið 2008. Þá var lagður gólfhiti í gólf efri hæðar, skipt um gólfefni og settar upp nýjar innréttingar, fataskápar og innihurðir, auk fleiri endurbóta.
* Útidyrahurðir hafa verðið endurnýjaðar.
* Hluti af gleri og opnanlegum fögum hefur verið endurnýjað.
* Búið er að jarðvegsskipta með norðurhliðinni og stækka bílaplanið.


Forstofu/aðalinngangur er á efri hæð hússins og er gengið upp timburstiga frá bílaplani. Í forstofu eru flísar á gólfi og stór skápur og skúffueining. Hiti er í gólfi.
Annar inngangur er inn á neðri hæðina og þar eru ljósar flísar á gólfum. Við endann á forstofunni er flísalagt hol og þaðan liggur parketlagður timburstigi upp á efri hæðinni en þar er einnig hurð út á um 100 m² timburverönd þar sem er heitur pottur. 
Eldhús, vönduð sérsmíðuð hvíttuð spónlögð eikarinnrétting með ljósri bekkplötu. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og amerískan ísskáp. Parket er á gólfi. 
Borðstofa er með flísum á gólfi og hurð út á timbur verönd, um 30 m² að stærð. 
Stofa er með parketi á gólfi og stórum gluggum með útsýni út fjörðinn. 
Gangur er með parketi á gólfi og einföldum innbyggðum skáp. Af ganginum er gengið inn í öll helstu rýmin á hæðinni. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni og öll með parketi á gólfi og hvíttuðum spónlögðum eikarfataskápum og eitt á neðri hæðinni með ljósu harðparketi á gólfi. Möguleiki væri að nýta geymslu á efri hæðinni sem fimmta svefnherbergið. 
Geymsla á efri hæðinni er með parketi á gólfi og stórum glugga með opnanlegu fagi og getur þar af leiðandi nýst sem svefnherbergi. 
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Aðal baðherbergið er á efri hæðinni og þar eru flísar á gólfi og veggjum, sérsmíðuðu hvíttuð spónlögð eikarinnrétting, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Baðherbergi á neðri hæðinni er með lökkuðu gólfi, handlaug, wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. 
Bílskúr er um 40 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og rafdrifin innkeyrsluhurð. Hleri er í gólfinu niður í útgrafið rými. 

Sér 2ja herbergja íbúð er á neðri hæðinni og skiptist í hún í forstofu, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. 
Ljóst harðparket er á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi, þar eru flísar. 
Eldhús og stofa eru í alrými þar sem harðparket er á gólfum og gluggar til austurs. Hvít eldhúsinnrétting með ljósri bekkplötu. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, wc, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla er með ljósu harðparketi á gólfi. 

Annað
- Gólfhiti er á efri hæðinni og rafmagnskynding á neðri hæðinni. 
- Varmaskiptir.
- Stór timburverönd er með suður og vesturhliðinni.
- Búið er að setja upp rafhleðslustöð.
- Frábært útsýni yfir fjöll og sjó.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/06/201828.600.000 kr.35.500.000 kr.261.4 m2135.807 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1977
Fasteignanúmer
2160960
Byggingarefni
Steypt

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Árakur 9
Bílskúr
Skoða eignina Árakur 9
Árakur 9
210 Garðabær
248,9 m2
Raðhús
514
828 þ.kr./m2
206.000.000 kr.
Skoða eignina Snekkjuvogur 21
Opið hús:10. nóv. kl 17:30-18:30
Skoða eignina Snekkjuvogur 21
Snekkjuvogur 21
104 Reykjavík
258 m2
Einbýlishús
13110
620 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Kópavogsbraut 8
Skoða eignina Kópavogsbraut 8
Kópavogsbraut 8
200 Kópavogur
259,7 m2
Einbýlishús
734
673 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Eikardalur 10
Heitur pottur
Skoða eignina Eikardalur 10
Eikardalur 10
260 Reykjanesbær
259 m2
Einbýlishús
625
483 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin