Miklaborg kynnir: Björt og falleg fjögurra herbergja 127,5 m2 neðri sérhæð við Kólguvað 3 í Norðlingaholti. Eignin er í sérlega barnvænu hverfi þar sem stutt er í góða leik- og grunnskóla. Frábærar gönguleiðir eru í kringum hverfið, bæði Heiðmörk og Elliðaárdalurinn. Skjólsæll sólpallur í vestur er út frá stofu.
Eignin skiptist í: Forstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rúmi, þvottahús og geymslu.
Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing
Forstofa: er flísalögð með góðum fataskápum.
Baðherbergi: er flísalagt með upphengdu salerni. Ný hvít baðinnréttingu með efri speglaskápum og fallegum vaski, sturtuklefi, baðkar og handklæðaofn.
Eldhús: Hvít L-laga innrétting með góðu skápaplássi og eyju, span helluborð, bakaraofn í vinnuhæð .
Stofa/borðstofa: er opið bjart rými með eldhúsi. Harðparket á gólfum, útgengt á skjólsælan sólpall með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með opnum skápum.
Tvö barnaherbergi með skápum.
Þvottahús/geymsla: er flísalagt með góðri innréttingu undir þvottavél og þurrkara. Geymsla og þvottahús var sameinað og er því eitt stórt rými í dag. Auðvelt að setja upp vegg og skipta aftur upp rýmunum.
Neðri hæðin á sérafnotarétt fyrir aftan hús ásamt verönd fyrir framan húsið samkvæmt eignaskiptasamningi.
Virkilega björt og fín eign þar sem stutt er í skóla, leikskóla og Heiðmörk með öllum sínum útivistarmöguleikum.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
05/10/2015 | 35.900.000 kr. | 37.500.000 kr. | 127.5 m2 | 294.117 kr. | Já |
02/05/2014 | 32.200.000 kr. | 31.000.000 kr. | 127.5 m2 | 243.137 kr. | Nei |
09/08/2007 | 24.950.000 kr. | 34.000.000 kr. | 127.5 m2 | 266.666 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
110 | 127.5 | 102,9 | ||
110 | 157.8 | 94,9 | ||
110 | 116 | 107,9 | ||
110 | 91.1 | 92,9 | ||
110 | 164.4 | 103,9 |