VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallega endaíbúð í raðhúsi, við Hraunbæ 41 í Hveragerði.
Eignin er samtals 143,3m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Íbúðin er 111,4m² að stærð og bílskúrinn er 31,9m².
Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Hellulagt bílaplan og snyrtileg aðkoma að húsinu.
Útgengt er frá stofu á skjólgóða timburverönd er snýr til suðurs. Þar er nýr heitur pottur, skjólgott setursvæði og geymsluskúr.
Frábær staðsetning því stutt er í alla helstu þjónustu bæjarins, hvort sem er gangandi eða ekki.
** Áætlað fasteignamat 2026 er kr. 86.750.000 **
Sjá staðsetningu hér:
Nánari lýsing:Anddyri með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er frá stofu út á skjólgóða timburverönd, með heitum potti er snýr til suðurs.
Eldhús er með viðar innréttingu. Þar eru efri og neðri skápar og gott vinnupláss. Keramikhelluborð, vifta og bakarofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Frístandandi eyja með góðu skúffuplássi og aðstöðu til að vinna við.
Baðherbergi er flísalagt. Þar er innrétting með handlaug, gott skápa og skúffupláss, wc og baðkar.
Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott og hátt til lofts. Parket á gólfi.
Bílskúr er flísalagður. Geymsluloft yfir hluta bílskúrs. Rafmagnsopnari á bílskúrshurð.
Þvottahús er flísalagt. Þar er gluggi og góð innrétting fyrir þvottavél og þurkara og gott skápa og skúffupláss.
Gólfefni íbúðar er parket og flísar.
Afgirt timburverönd er fyrir aftan eignina. Þar er skjólgott og frágangur vandaður. Komin er
nýr pottur og verið er að klára frágang í kringum hann.
Fallegt setusvæði er á pallinum en einnig er þar geymsluskúr fyrir útidót og garðverkfæri.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.