Afar falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í Hraununum í Hafnarfirði.
** 2 svefnherbergi
** Stór pallur sem vísar í suður
** Mikið endurnýjuð að innan
** Frábær staðsetningNánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 88,8m2
Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar.
Nánari lýsing
Inngangur er sameiginlegur.
Forstofa með fatahengi. Flísar á gólfi.
Eldhús er með góðri hvítri innréttingu og viðarborðplötu með bakaraofn, sambyggðum ofni/örbylgjuofni, helluborði, veggháf og stæði fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með hljóðdempandi þiljum á vegg sem opinn er að hluta inn í eldhús. Útgent er á stóra viðarverönd. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I er með parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, "walk-in" sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar með plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar, ca, 7m2 og er í dag nýtt sem fataherbergi. Parket á gólfi.
í sameign er hjólageymsla og þar hefur hver eign eigin geymsluskáp.
Framkvæmdir síðustu ár
2024-2025 Múrviðgerðir að utan og málað
2025-2026 Skipt um þakjárn og þakpappa
Krókahraun 12, íbúð merkt 05-0101, er sérlega hugguleg eign á frábærum stað miðsvæðis í Hafnarfirðinum. Stutt er í alla helstu þjónstu eins og skóla og verslanir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.