Gimli fasteignasala, Sigþór Bragason og Herdís Valb. Hölludóttir kynna: Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja 135,1 fm eign á 2.hæð með sér inngangi af svölum og bílskúr í góðu og eftirsóttu steinhúsi við Garðhús 1 í Grafarvogi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Bókið skoðun hjá Sigþóri í síma 899- 9787/sb@gimli.is eða Herdísi í síma 694-6166/ herdis@gimli.isNánari lýsing:Inngangur: Sér inngangur af svölum.
Forstofa: Með flísum á gólfi og stórum fataskáp sem nær að lofti.
Stofa og borðstofa: Liggja saman í opnu og björtu rými. Frá stofu er gengið út á stórar svalir með fallegu útsýni til suðvesturs.
Eldhús: Með fallegri innréttingu með miklu skápaplássi, rými fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, flísar milli skápa og á gólfi og góður borðkrókur við glugga.
Herbergi 1 : Stórt hjónaherbergi með góðum skápum og parketi á gólfi
.
Herbergi 2 : Rúmgott barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Herbergi 3 : Rúmgott barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með innfeldum vaski í borðplötu, handklæðaofni, baðkari og sturtuklefi.
Þvottahús: Er innan íbúðar með innréttingu fyrir tæki í vinnuhæð og flísum á gólfi.
Geymsla: Er á 1.hæð og er 8,9 m2 að stærð.
Bílskúr: 26,2 m2 bílskúr með hita, rafmagni og vatni. Sérafnotaréttur af bílastæði fyrir framan bílskúrsreit.
Hússjóður er. 15.008 kr. á mánuði. Einnig er greitt 18.000 kr. x 4 sinnum á ári í lóðarumhirðu.
Um er að ræða sérlega fallega og vel skipulagða eign á rólegum og góðum stað í Grafarvogi með fallegu útsýni. Fallegt hús sem hlotið hefur gott viðhald.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787/ sb@gimli.is og Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 694-6166 /herdis@gimli.is Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 43 ára starfsafmæli á árinu 2025. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.